fbpx
en
Menu
en

Innsýn í námið

Málmur, vélar, tækni og fræði

Véltækniskólinn býður upp á nám rennismíði, stálsmíði, vélstjórn, vélvirkjun og flugvirkjun. Að námi loknu hefur nemandi lokið undirbúningi undir sveinspróf í iðngreininni. Stúdentspróf er í boði sem viðbótarnám allra brauta, er þó innifalið í átta anna vélstjórnarréttindanámi.

Námið felst bæði í bóknámi og verknámi. Verknám fer fram í húsnæði skólans á Háteigsvegi í Reykjavík og í Flatahrauni í Hafnarfirði nema allt nám í flugvirkjun fer fram í Árleyni í Grafarvogi. Bóknámið er í dagskóla en er í auknum mæli boðið í dreifnámi.

Eingöngu er opið fyrir umsóknir í dagnám fyrir haustönn en opið er fyrir umsóknir í dreifnám fyrir báðar annir.

Námsbrautir

Umsagnir

Valdimar Árnason lauk námi í flugvirkjun

Í byrjun árs 2017 var komið að því, ég ætlaði að gera eitthvað meira en bara vinna. Mig langaði að gera eitthvað sem ég hafði virkilega áhuga á. Var búinn að velta þessu fyrir mér í kannski tvö ár og svo sá ég auglýsingu á Facebook fyrir flugvirkjanám Tækniskólans. Auglýsingin poppaði auðvitað upp á mínum skjá því ég hef haft brennandi áhuga á flugvélum síðan ég var 4 ára og er með fullt að flugvélatengdum síðum á Facebook.

Ég sé ekki eftir að hafa sótt um þetta sérnám því ég kynntist fólki frá öllum stéttum samfélagsins. Fólk sem hafði mismikinn áhuga en vildi gera það sama og ég, finna sér eitthvað sem væri öðruvísi en þau höfðu verið að vinna við. Gaman var að fylgjast með þeim öllum fá aukinn áhuga fyrir þessum tækjum háloftanna með mér.

Námið er skemmtilegt og mjög fjölbreytt en á köflum ansi strembið og voru flestir kennararnir mjög færir að einfalda efnið fyrir manni. Það sem ég tek úr þessu er auðvitað námið og kunnátta mín að leysa vandamál en þessi  tvö ár með bekkjarfélögunum stendur upp úr. Tveir mánuðir fyrir norðan á Akureyri í verklegu námi virkilega þéttu hópinn og er maður heppinn að hafa eignast svona marga vini.

Rafnar Snær Baldvinsson lauk námi í vélstjórn

Vélstjórnarnámið er mjög fjölbreytt, inniheldur mikið af nytsamlegum upplýsingum og hefur frábæra kennara sem miðla þekkingu eins og þeim einum er lagið. Þetta nám opnar margar dyr og gerir að verkum að það er fátt sem að flækist fyrir manni í framtíðinni. Ég mæli eindregið með þessu námi ef að þú ert forvitin/n um virkni hluta og/eða viðgerðir.

Sigurður fór í nám í verkfræði í Háskólanum eftir nám í Véltækniskólanum.

„Fjölbreytnin í náminu er góður grunnur. Ég finn að ég stend betur að vígi en margir sem eru með mér í verkfræðináminu hér í Háskólanum.“

Námssamningur

Ný reglugerð um vinnustaðanám tók gildi 1. ágúst 2021. Vinnustaðanám er hluti af náms­skipulagi þeirra nemenda sem hófu nám á haustönn 2021. Frá þeim tíma sjá framhaldsskólar um gerð og staðfestingu vinnustaðanámssamninga og hafa eftirlit með þeim. Nemendur sem hefja vinnustaðanám eftir gildistöku reglugerðarinnar vinna samkvæmt ferilbók sem gefin er út af Menntamálstofnun.

Nemendur Tækniskólans sem hófu nám fyrir gildistöku reglugerðarinnar 1. ágúst 2021 og óska eftir að fara hefja vinnustaðanám sækja um á innritunarvef Véltækniskólans.

Velkomin

Velkomin í Véltækniskólann

Víglundur Laxdal Sverrisson

- Kveðja frá skólastjóra

Í Véltækniskólanum tökum við vel á móti þeim sem vilja ná sér í hagnýta hágæða tæknimenntun. Útskrifaðir nemendur frá okkur starfa víða og námið opnar fjölda fjölbreyttra atvinnutækifæra.

Dagnámskennsla í Véltækniskólanum í Reykjavík fer að mestu fram í Sjómannaskólanum Háteigsvegi og í Hafnarfirði (Flatahrauni og Gjótuhrauni), flugvirkjunin er í Árleyni í Reykjavík.

Hlökkum til að sjá þig.

 

Víglundur Laxdal Sverrisson

  • Skólastjóri Véltækniskólans og Skipstjórnarskólans

FAQ

Spurt og svarað

Er hægt að taka stúdentspróf með náminu?

Námi til vélstjórnarréttinda C og D lýkur með stúdentsprófi.

Fagnámi málm- og véltæknigreina lýkur ekki með stúdentsprófi en nemendur eiga kost á slíku viðbótarnámi til undirbúnings námi á háskólastigi. Mögu­legt er einnig að taka viðbótarnámið samhliða fagnáminu.

Þarf að eiga sérstakan búnað fyrir námið?

Nemendur sem hefja nám í Véltækniskólanum verða að koma með eigin öryggisskó, hlífðargleraugu og heyrnahlífar sem skylt er nota í verklegu námi skólans og við aðra vinnu þar sem kennarar krefjast þess að nemendur noti hlífðarbúnað.

Áréttað skal að nemendum er með öllu óheimilt að vinna við vélar og tæki nema í skipulögðum áföngum þar sem kennari er til staðar.

Hvar vinna útskrifaðir nemendur úr Véltækniskólanum?

Vélstjórar og vélfræðingar starfa m.a. í verksmiðjum, á skipum, í orkuverum og þar sem gerðar eru kröfur um víðtæka þekkingu á vél- og tæknibúnaði. Vélstjórnarnám veitir réttindi til atvinnu um allan heim á skipum af öllum stærðum og gerðum, við fiskveiðar, flutninga eða á stærstu farþegaskipum.

Vélvirkjar starfa einkum í þjónustufyrirtækjum sem annast viðhald véla og vélbúnaðar, í framleiðslufyrirtækjum sem nýta vélar í starfsemi sinni, í verktakafyrirtækjum byggingastarfsemi og skipasmíða og í fyrirtækjum sem smíða vélar og vélbúnað.

Flugvirkjar starfa á flugvöllum og við viðhaldstengda þjónustu við flugvélar um allan heim, enda er námið með evrópska viðurkenningu. Störfin felast í almennu viðhaldi með flugvélum og úrlausn vandamála sem upp koma við notkun.

Stálsmiðir starfa einkum hjá framleiðslu-, verktaka- og byggingafyrirtækjum sem hanna, smíða og gera við vélar, reisa mannvirki og viðhalda þeim, smíða, viðhalda og gera við skip og veita aðra þjónustu sem byggist á meðferð og meðhöndlun málma.

Rennismiðir starfa gjarnan á sérhæfðum rennismíðaverkstæðum sem jafnan eru annað tveggja deildir innan málm- og véltæknifyrirtækja eða sérstök þjónustu- og smíðafyrirtæki.

Hvernig kemst ég á námssamning?

Hér má sjá upplýsingar um vinnustaðanám og ferilbók.

Ég er með stúdentspróf, fæ ég það metið og hvað er námið þá langt?

Í öllu námi Véltækniskólans, nema flugvirkjun, eru almennar greinar sem kenndar eru í framhaldsskólum landsins og eru hluti af almennu stúdentsprófi, og eru þær metnar inn í námið sem getur stytt námstímann um allt að fjórðung.

Í flugvirkjun eru ekki almennar greinar í kjarnanáminu og því er ekki um mat almennra greinar að ræða þar, en rétt er að nefna að stúdentspróf er góður grunnur fyrir nám í flugvirkjun enda er nauðsynlegt að búa yfir góðri kunnáttu í stærðfræði, eðlisfræði og ensku.

Er námið lánshæft hjá LÍN?

Já, lánasjóðurinn veitir nánari upplýsingar. Sjá lista yfir lánshæft nám neðst á síðunni hjá LÍN.

Spurningar

Hafðu samband og við svörum þér um hæl!

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.
Var efnið á síðunni hjálplegt?
Frábært það eru góðar fréttir!