Spurningar og svör sem komið hafa upp í tengslum við ný sóttvarnarlög og nýjar áherslur í skólastarfinu.
Merkt er við mætingu í hverjum tíma. Sérlega mikilvægt er að skrá viðveru í húsi nákvæmlega vegna rakningar ef upp kemur smit. Eftirfarandi bókstafir skulu notaðir:
Ef nemandi telur sig ekki geta mætt í skólann vegna COVID af öðrum ástæðum en að hann sé í einangrun eða sóttkví (svo sem vegna undirliggjandi sjúkdóms) þá skal viðkomandi nemandi eða forráðamaður hafa samband við skólastjóra/námsráðgjafa sem skoðar hans mál.
Ef nemendur eru í sóttkví eða einangrun og þurfa að sýna skólanum fram á vottorð má nálgast þau inn á heilsuvera.is en hér má sjá nánari leiðbeiningar um ferlið.
Hér má sjá sóttvarnarreglur í skólanum sem einnig hanga uppi víða um skólann:
Ef einhver virðir ekki sóttvarnarreglur er best að byrja á að benda viðkomandi á að virða reglurnar, en oft er það að fólk gleymir sér og tekur ábendingunni vel. Ef viðkomandi virðir ekki sóttvarnarreglur þrátt fyrir að hafa fengið ábendingu skal skrá ábendingu í ábendingakerfi skólans á slóðinni. Eins má hafa samband við skólastjóra viðkomandi. Hér má finn netföng og símanúmer skólastjóra.
Ef þú greinist með COVID-19 færð þú leiðbeiningar frá COVID-19 göngudeild Landspítalans um hvað þú átt að gera varðandi einangrun. Þú tilkynnir skólanum um veikindin með því að senda póst á netfangið [email protected] og tilkynnir forföll í Innu með sama hætti og þegar um „hefðbundin“ veikindi er að ræða ásamt athugasemdinni ,,covidsmit“. Sjá nánar á upplýsingasíðu um veikindi og forföll.
Ef þú þarft að fara í sóttkví mun smitrakningarteymi almannavarna segja þér hverjar reglurnar eru í sóttkví og hversu lengi þú þarft að vera í sóttkví. Þú tilkynnir skólanum um sóttkví með því að senda póst á netfangið [email protected] og tilkynnir forföll í Innu með sama hætti og þegar um „hefðbundin“ veikindi er að ræða ásamt athugasemdinni ,,sóttkví“. Sjá nánar á upplýsingasíðu um veikindi og forföll.
Hér finnur þú leiðbeiningar um hvað þú þarft að gera til að geta unnið í fjarnámi og upplýsingar og leiðbeiningar um Teams.
Ef þú hefur áhyggjur eða ert kvíðin/n vegna Covid-19 ekki hika við að hafa samband við sálfræðing Tækniskólans Benedikt Braga Sigurðsson, en hægt er að panta tíma hjá honum í gegn um Innu. Hér má sjá nánari upplýsingar um sálfræðiþjónustu Tækniskólans.
Einnig getur þú haft samband við náms-og starfsráðgjafa skólans.
Ef þú ert veik/ur eða hefur grun um að þú sért smituð/aður mátt þú alls ekki mæta í skólann. Hafðu samband við heilsugæsluna þína eða kynntu þér leiðbeiningarnar á upplýsingasíðu COVID en þar má fá ráðgjöf um næstu skref og hvort þú þurfir að fara í sýnatöku.
Ef þú hefur farið í sýnatöku mátt þú ekki mæta í skólann á meðan þú bíður eftir niðurstöðu sýnatökunnar.
Ef þú greinist ekki með Covid-19 mátt þú samt sem áður ekki mæta í skólann fyrr en í fyrsta lagi eftir að þú hefur verið einkennalaus í tvo daga.
Ef þú finnur fyrir kvefeinkennum eða öðrum einkennum um veikindi eftir að þú er mætt/ur í skólann skaltu fara strax heim og láta kennarann þinn eða skólastjóra vita. Hafðu samband við heilsugæsluna þína eða kynntu þér leiðbeiningarnar á upplýsingasíðu COVID en þar má fá ráðgjöf um næstu skref og hvort þú þurfir að fara í sýnatöku.
Ef þú greinist ekki með Covid-19 mátt þú samt sem áður ekki mæta í skólann fyrr en í fyrsta lagi eftir að þú hefur verið einkennalaus í tvo daga.
Sjá upplýsingar um smitgát á Covid.is