Annarlok
Kæru nemendur
Við viljum benda ykkur á nokkur mikilvæg atriði sem gott er að hafa í huga í lok annar.
Annarlok
Síðasti starfsdagur samkvæmt námsáætlun og stundaskrám er birtur í skóladagatali nemenda en kennslulok geta verið mismunandi eftir áfanga. Nánari upplýsingar um skipulag hvers áfanga eru á Innu.
Dagarnir 13. til 19. maí eru námsmatsdagar og þá fer það eftir skipulagi áfanga hvort nemendur þurfa að mæta í próf/upptökupróf/vinna í verkefnum eða skila síðustu verkefnunum en hver nemandi fær upplýsingar um það hjá sínum kennara.
Próf og verkefni
Kennarar setja próf og verkefni í Innu þannig að nemendur sjá nákvæmlega hvenær á að skila öllum verkefnum og taka öll próf. Nemendur eru hvattir til að yfirfara þetta vandlega í öllum áföngum og vera í sambandi við kennara ef þeir hafa spurningar eða athugasemdir.
Lokaeinkunnir, námsmat og endurgjöf
Lokaeinkunnir verða birtar í Innu þann 19. maí 2022. Nemendur eru hvattir til að skoða námsmat og fara yfir einkunnir. Einnig er þetta tækifæri til að endurskoða val næstu annar með umsjónarkennara sem verður til taks á Teams kl. 10:00–12:00 þann dag.
Brautskráning Tækniskólans
Brautskráning Tækniskólans verður haldin í Eldborgarsal Hörpu sunnudaginn 22. maí 2022 kl. 13:00.
Skóladagatal
Mikilvægar dagsetningar eru í skóladagatali nemenda, í Innu og í viðburðardagatali á vef skólans.
Aðstoð í námi
Áhersla er lögð á að veita nemendum góða aðstoð í námi og viljum við benda ykkur á þá þjónustu sem skólinn býður upp á:
- Í námsveri skólans geta nemendur m.a. fengið hjálp við próftöku og aðstoð við verkefna- og ritgerðarsmíð.
- Á bókasöfnum geta nemendur fengið greiðan aðgang að upplýsingum og heimildum vegna náms og kennslu.
- Í ritveri er m.a. boðið upp á aðstoð við ritgerðarskrif, heimildaleit og heimildaskráningar.
- Boðið er upp á ýmsa aukatíma í skólanum. Sjá má hvaða tímar eru í boði í maí í viðburðardagatali skólans.
- Náms- og starfsráðgjafar aðstoða nemendur við ýmislegt sem lýtur að námi og námsframvindu.
Gangi ykkur sem allra best á lokasprettinum!