fbpx
en
Menu
en

Fréttir

12. mars 2024

Valvika

Staðfesting á skólavist

Í valvikunni 11.–15. mars staðfesta nem­endur í dag­skóla umsókn sína um áfram­hald­andi skóla­vist á vorönn 2024. Það er gert með því að staðfesta val í Innu og greiða álagt staðfest­ing­ar­gjald. Þá þurfa nemendur ekki að sækja aftur form­lega um skóla­vist.

Hér má sjá nánari leiðbeiningar um áfangaval og brauta­skipi.

Nemendur geta einnig fengið aðstoð við valið frá starfsfólki skólans á eftirfarandi tímum:

11. mars kl. 12:00–13:00
Matsalur nemenda

  • Skólavörðuholt: Anna Ósk, Þórdís, Jóna Dís og Sandra
  • Háteigsvegur: Halla María, Kristín Þóra og Víglundur
  • Hafnarfjörður: Inga Jóna, Ragnhildur og Guðrún

12. mars kl. 12:00–13:00
Matsalur nemenda

  • Skólavörðuholt: Anna Ósk, Þórdís, Guðrún, Jóna Dís og Sandra
  • Háteigsvegur: Halla María, Erna Ýr og Kristín Þóra
  • Hafnarfjörður: Inga Jóna, Víglundur og Ragnhildur

 

Staðfestingargjald

Staðfest­ing­ar­gjald dregst frá upphæð skóla­gjalda en áríðandi er að nem­endur sem óska eftir áfram­hald­andi skóla­vist á næst­kom­andi önn staðfesti umsóknina með því að greiða álagt staðfest­ing­ar­gjald sem er 5.000 kr. Staðfest­ing­ar­gjald fæst ekki end­ur­greitt. Ef staðfest­ing­ar­gjald er ekki greitt þá þurfa nemar að sækja aftur form­lega um á vef Menntamálastofnunar.

Hægt er að greiða kröfuna í næsta banka og dugar þá að gefa þar upp kenni­tölu greiðanda og að krafan sé í Lands­bank­anum banka 111. Ef nem­andi er undir 18 ára aldri er krafan stofnuð á þann sem skráður er aðstand­andi númer eitt í Innu.

Gjald­dagi staðfest­ing­ar­gjalds er 15. mars og eindagi er 3. apríl.

Athugið að valvikan og staðfestingargjaldið á ekki við um nemendur sem eru á brautum í flugvirkjun, vefþróun, meistaraskóla, stafrænni hönnun, hljóðtækni eða í dreifnámi.

 

Brautarskipti

Umsókn um brauta­skipti fer einnig fram í Innu. Nemendur sem hyggja á að skipta um braut og eða þeir sem eru að ljúka grunnbrautum og þurfa að velja sér framhaldsbraut. Nem­endur sem sækja um brauta­skipti þurfa ekki að velja áfanga en nauðsyn­legt er að greiða staðfest­ing­ar­gjaldið. Athugið að ástundun, náms­gengi og mæting gæti haft áhrif á samþykki um brauta­skipti. Síðasti dagur til að óska eftir brautarskiptum er í lok dags þann 3. apríl.

 

Upplýsingar og leiðbeiningar

Leiðbeiningar vegna vals – nemendur

Leiðbeiningar vegna brautaskipta – nemendur

Valvika – opið val

Námsskipulag allra brauta

Myndræn útskýring á áfangaheitum

Leiðbeiningar vegna valviku – fyrir starfsmenn

 

Vinnustaðanám/námssamningar/ferilbók

Nemendur á námsbrautum sem innihalda vinnustaðanám er sérstaklega bent á að skoða námsskipulag brautarinnar og leita aðstoðar í valinu ef á þarf að halda. Mikilvægt er að skoða hvort það er tímabært á næstu önn, t.d. ef aðeins loka önn er eftir. Nemendur sem eru komnir með samningspláss eru minntir á að sækja um að skólinn geri námssamning og stofni ferilbók https://tskoli.is/vinnustadanam /innritun/

Sjá nánar um vinnustaðanámið https://tskoli.is/vinnustadanam/