Kennd gerð víravirkis allt frá undirbúningi efnis að fullunnu skarti.
Fjallað verður um mismunandi tegundir þjóðbúningasilfurs,
svo og tímabil í íslenskri þjóðbúningargerð.
Þátttakendur fá sjálfir að spreyta sig á flestu sem viðkemur vinnu við gerð víravirkis, kveikja, snitta, vinna höfuðbeygjur, kornsetja, eldbera, pússa, pólera og ganga frá fullunnu víravirkisskarti.
Smelltu hér til að skrá þig á póstlistann og fá reglulegar fréttir af námskeiðum okkar.
22. janúar | miðvikudagur | 18:00 – 21:30 |
29. janúar | miðvikudagur | 18:00 – 21:30 |
5. febrúar | miðvikudagur | 18:00 – 21:30 |
12. febrúar | miðvikudagur | 18:00 – 21:30 |
19. febrúar | miðvikudagur | 18:00 – 21:30 |
4. mars | miðvikudagur | 18:00 – 21:30 |
11. mars | miðvikudagur | 18:00 – 21:30 |
18. mars | miðvikudagur | 18:00 – 21:30 |
Alls 28 klukkutímar
Harpa Kristjánsdóttir.
Harpa er gull-og silfursmíðameistari, fagstjóri og kennari við
gull- og silfursmíðabraut Tækniskólans frá árinu 2000.
Námskeiðsgjald: 82.500kr.
Efni: Innifalið er efni að andvirði 12.000 kr.
Námskeið Endurmenntunarskólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga.
Námskeiðsgjöld eru óafturkræf nema forföll séu tilkynnt með a.m.k. þriggja sólarhringa fyrirvara.
Til að fá skírteini að loknu námskeiði þurfa þátttakendur að vera með lágmark 80% mætingu
Skemmtilegt námsefni og Harpa er frábær kennari.
Kapp lagt á að maður öðlist hæfni til að geta unnið sjálfur.
Kostur að skólinn hefur yfir miklum og góðum tækjum að ráða.
Nei öll verkfæri eru á staðnum.
Já það er gert upp í lok námskeiðs.
Nei námskeiðið hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa verið áður.
Já skírteini verða send í pósti að loknu námskeiði.