Námið hefst á grunnbraut sem tekur að jafnaði þrjár annir. Þar eru allar almennar greinar kenndar auk grunnáfanga hársnyrtiiðnar. Næst tekur við framhaldsbraut hársnyrtiiðnar þar sem námið er verkefnabundið og þá fléttast saman nám í skóla og á vinnustað.
Heildarnámstími er að jafnaði 3–4 ár að grunnbraut meðtalinni. Nám og kennsla í hársnyrtiiðn miðast við að veita almenna, faglega undirstöðumenntun í greininni, auka færni nemenda í meðferð hársnyrtivara og beitingu áhalda og tækja. Leitast er við að þjálfa sjálfstæð vinnubrögð nemenda og auka hæfileika og getu þeirra til samvinnu við aðra.
Markmið námsins er að gera nemendur færa um að veita þá alhliða þjónustu sem er í boði á hársnyrtistofum á hverjum tíma. Hársnyrtar vinna í mikilli nálægð við viðskiptavini sína og því er mikilvægt að efla samskiptafærni og getu til þess að öðlast skilning á þörfum viðskiptavina af ólíkum toga. Lögð er áhersla á gæðavitund, þjónustulund og siðfræði fagsins í víðum skilningi.
Námskrá í hársnyrtiðn er í endurskoðun, sjá nánar í námsskipulagi brautar.
Til að hefja nám á hársnyrtibraut þarf að hafa lokið 1. þreps áföngum í íslensku, ensku og stærðfræði eða grunnskólaeinkunn B. Ef umsækjandi nær ekki að uppfylla þessi skilyrði stendur honum til boða að taka þá áfanga á 1. þrepi sem hann vantar.
Námið er samtals sex annir í skóla með grunnnáminu og vinnustaðanám samkvæmt hæfnikröfum ferilbókar að hámarki 52 vikur. Almennt er miðað við að nemendur hafi lokið starfsþjálfun í síðasta lagi áður en nám hefst í lokaáföngum fagbrautar eða samhliða.
Námsframvinda vinnustaðarnáms miðast við að nemandinn sé búinn að uppfylla að lágmarki 80% af hæfniviðmiðum í ferilbók faggreinar til að innritast í lokaáfanga brautar.
Hársnyrtiiðn er löggilt iðngrein.
Prófskírteini af fagbraut ásamt því að starfsþjálfun sé lokið, veitir rétt til að sækja um sveinspróf í viðkomandi grein. Sveinspróf veitir rétt til að hefja nám í Meistaraskóla.
Einnig er hægt að ljúka viðbótarnámi til undirbúnings námi á háskólastigi en slíku námi lýkur með stúdentsprófi.
Fullnuma hársnyrtir getur starfað á hársnyrtistofum hér á landi og erlendis, við fjölmiðla, leikhús, heildsölur og sýningar ýmiskonar. Einnig er möguleiki á framhalds- og viðbótarmenntun og sérhæfingu á ýmsum sviðum.
Hársnyrtideildin er reglulega með stofudaga á Skólavörðuholti.
Þá geta allir komið í klippingu, litun eða aðra hársnyrtingu gegn vægu gjaldi.
Fyrstur kemur, fyrstur fær og afgreitt er eftir númerum.
Verið velkomin!
Sjá upplýsingar um skólagjöld í gjaldskrá Tækniskólans.
Einnig þurfa nemendur að kaupa sér verkfæri og tæki til að nota í verklegum tímum og getur kostnaður við það verið allt að 150.000 kr. í upphafi. Þessir hlutir nýtast gegnum allt námið, aðeins þarf að kaupa hausa til viðbótar á flestum önnum og einstaka áhald.
Hér má sjá lista yfir nauðsynlega hluti.
Menntasjóður námsmanna veitir allar upplýsingar um lánshæfi náms á menntasjodur.is
Nei, efnisgjöld eru innifalin í skólagjöldum.
Sjá upplýsingar í skóladagatali Tækniskólans.
Kennslan á Hársnyrtibraut fer fram á Skólavörðuholti.
Nánari upplýsingar um staðsetningu og húsnæði Tækniskólans.
Já, þegar nemendur hefja nám á hársnyrtibraut þá þurfa þeir að festa kaup á áhöldum, bókum og hári fyrir verklegu áfangana. Sjá má námsgagnalistann í Innu. Mjög mikilvægt er að nemendur kaupi þessa hluti í fyrstu kennsluviku þar sem ekki er mögulegt að hefja námið án þess. Kostnaður fyrir verklegu áfangana getur orðið um 150.000kr. í upphafi. Þessir hlutir nýtast gegnum allt námið, aðeins þarf að kaupa hausa til viðbótar á flestum önnum og einstaka áhald.
Já, hér má sjá nánari reglur um skólasókn í Tækniskólanum.
Nemandi sem er í starfsnámi á framhaldsskólastigi á kost á viðbótarnámi til undirbúnings námi á háskólastigi. Slíku námi lýkur með stúdentsprófi.
Nánari upplýsingar um félagslíf og nemendafélög Tækniskólans.
Sækja um hnappur er hér á síðunni.