fbpx
Menu

Innsýn í námið

Námið á brautinni byggir á skapandi vinnu og brúar bil á milli verklegrar og tæknilegrar þekkingar og aðferða í hönnun.

Ef þú vilt undirbúa þig fyrir skapandi nám á háskólastigi þá er þetta námið fyrir þig. Ef þú ert með stúd­ents­próf eða sam­bæri­legt nám, þá er Hönnunar- og nýsköpunarbraut – fornám braut sem hentar.

Þú lærir að vinna með sjónræna þætti eins og teikningu, liti og form, rannsóknir á umhverfi og samfélagi, hugmyndavinnu og lausnaleit. Áhersla er á vinnu með sjálfbærni, nýsköpun og persónulega sýn í verkefnavinnu. Nemendur vinna ferilmöppu á síðustu önn námsins.

 

Brautarlýsing

HNÝ21/22 Hönnunar- og nýsköpunarbraut - stúdentsleið

Markmið Hönnunar- og nýsköpunarbrautar er að búa nemendur undir hönnunar- og tæknitengdar greinar á háskólastigi. Náminu lýkur með stúdentsprófi og er ætlað að brúa bil á milli verklegrar og tæknilegrar þekkingar og aðferða í hönnun þar sem unnið er með hönnunarferli í lausnaleit. Sérstök áhersla er á vinnu með verklag, nýsköpun og sjálfbærni. Að námi loknu eiga nemendur að vera með góðan undirbúning fyrir nám sem reynir á skapandi vinnu, lausnaleit og frumkvæði í einstaklingsvinnu sem og samvinnu.. Frjálst val á brautinni er 20 einingar.

Almennar upplýsingar

Inntökuskilyrði

Til að hefja nám á hönnunar og nýsköpunarbraut þarf umsækjandi að hafa lokið grunnskóla með lágmarkseinkunn B í íslensku, ensku og stærðfræði.

Að loknu námi

Námið er skipulagt sem þriggja ára stúdentsleið. Að námi loknu ættir þú að vera með góðan undirbúning fyrir nám sem reynir á skapandi vinnu, lausnaleit og frumkvæði í einstaklingsvinnu sem og samvinnu.

Nemendur útbúa ferilmöppu og hafa möguleika á að sækja um listaháskóla hér heima og erlendis t.d. í hönnun, arkitektúr og öðrum skapandi greinum.

Verkefni nemenda

Erasmus+ styrkur veitir góð tækifæri

Námsdvöl í hönnunarskóla í Danmörku

Hönnun, smíði og teikning

Hönnun, smíði og teikning

Hönnun og nýsköpun á vorsýningu

Fjölbreytt verkefni á vorsýningu

Umsagnir

Námsbraut þar sem áhugamál mín tengdust náminu.

Tinna fór á hönnunar- og nýsköpunarbraut og fannst það koma skemmtilega á óvart. „Námið er skapandi og frábær grunnur fyrir mig sem stefni á nám í hönnun, arkitektúr eða öðrum skapandi greinum. Ég er alveg í skýjunum með þetta nám.“

FAQ

Spurt og svarað

Hvernig sæki ég um?

Sækja um hnappur er hér á síðunni.

Er stúdentsprófið hreint bóklegt nám?

Nei, en vissulega er stór hluti námsins hefðbundnar bóklegar greinar. Sérfögin eru í aðferðafræði, hönnun, hönnunarsögu, teikningu, nýsköpun og frumkvöðlafræði. Auk þess fara nemendur á verkstæði í öðrum undirskólum Tækniskólans og fá að kynnast verk- og iðngreinum.

Hvað kostar námið?

Sjá upplýsingar um skólagjöld í gjaldskrá Tækniskólans.

Er námið lánshæft?

Menntasjóður námsmanna veitir allar upplýsingar um lánshæfi náms á menntasjodur.is

Eru efnisgjöld?

Nei, efnisgjöld eru innifalin í skólagjöldum.

Hvenær hefst kennsla?

Sjá upplýsingar í skóladagatali Tækniskólans.

Hvar fer kennslan fram?

Kennslan á hönnunar- og nýsköpunarbraut fer fram á Skólavörðuholti.

Nánari upplýsingar um staðsetningu og húsnæði Tækniskólans.

Er mætingarskylda?

Já, hér má sjá nánari reglur um skólasókn í Tækniskólanum.

Er nemendafélag?

Nánari upplýsingar um félagslíf og nemendafélög Tækniskólans.

Spurningar

Hafðu samband og við svörum þér um hæl!

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.
Var efnið á síðunni hjálplegt?
Frábært það eru góðar fréttir!