fbpx
Menu

Innsýn í námið

Aukin þörf fyrir fólk með þessa menntun

Rafvélavirkjun tekur á rafmótorum, rafvélastýringum og skynjaratækni en einnig er fjallað um varaaflsbúnað og rafknúin farartæki.

Námið veitir innsýn inn í þá tækni sem notuð er í iðnaði og í rafvæðingu farartækja.

Námið er alls 5 áfangar eða 25 einingar sem bætast ofan á rafvirkjanám en sveinspróf í rafvirkjun er inntökuskilyrði. Að loknu námi þarf nemandi að taka 30 vikur hjá meistara og má þá þreyta sveinspróf.

 

Brautarlýsing

RV20 Rafvélavirkjun

Nemendur sem hyggjast innritast í rafvélavirkjun þurfa að hafa lokið sveinsprófi í rafvirkjun.

Almennar upplýsingar

Inntökuskilyrði

Inntökuskilyrði er að nemandi hafi lokið sveinsprófi í rafvirkjun.

 

Námsframvinda

Raf­véla­virkjun er lög­gilt iðngrein. Námið í rafvélavirkjun er alls 5 áfangar eða 25 einingar sem bætast ofan á rafvirkjanámið (2 annir) og vinnustaðanám sam­kvæmt hæfni­kröfum fer­il­bókar að hámarki 30 vikur. Almennt er miðað við að nem­endur hafi lokið starfsþjálfun í síðasta lagi áður en nám hefst í loka­áföngum fag­brautar eða samhliða.

Náms­fram­vinda vinnustaðarnáms miðast við að nem­andinn sé búinn að upp­fylla að lág­marki 80% af hæfniviðmiðum í fer­ilbók fag­greinar til að inn­ritast í loka­áfanga brautar.

Að námi loknu

Próf­skír­teini af fag­braut ásamt því að starfsþjálfun sé lokið, veitir rétt til að sækja um sveins­próf í viðkom­andi grein. Sveins­próf veitir rétt til að hefja nám í Meist­ara­skóla.

Einnig er hægt að ljúka viðbót­ar­námi til und­ir­bún­ings námi á háskóla­stigi en slíku námi lýkur með stúd­ents­prófi.

FAQ

Spurt og svarað

Hvað kostar námið?

Sjá upplýsingar um skólagjöld í gjaldskrá Tækniskólans.

Er námið lánshæft?

Menntasjóður námsmanna veitir allar upplýsingar um lánshæfi náms á menntasjodur.is

Eru efnisgjöld?

Nei, efnisgjöld eru innifalin í skólagjöldum.

Þess má geta að sú stefna hefur verið tekin upp hjá Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins að allt námsefni í rafiðngreinum verði ókeypis nemendum. Þetta er langt komið og sárafáar bækur sem nemendur þurfa að kaupa til námsins.

Námsefni er að finna á rafbok.is.

Hvenær hefst kennsla?

Sjá upplýsingar um  skóladagatal og viðburði.

Hvar fer kennslan fram?

Kennslan í Rafvélavirkjun fer fram á Skólavörðuholti.

Þarf ég að vera með verkfæri?

Er mætingarskylda?

Já,  nánari reglur um skólasókn er að finna hér á vefnum.

Er nemendafélag?

Í Raftækniskólanum er starfandi skólafélag sem hefur það hlutverk að tengja stjórnendur skólans við nemendur og koma með athugasemdir og óskir um hluti sem betur mega fara. Jafnframt er skólafélagið tengiliður stjórnenda við nemendur. Fulltrúi skólafélagsins situr fundi með stjórnendum reglulega sem og fagráði skólans.
Skólafélagið skipar nefndir til að sjá um félagslíf innan skólans og uppákomur.
Nemendur sjá sjálfir um að móta, þróa og byggja upp félagsstarf. Saman mynda skólafélög innan Tækniskólans Nemendasamband Tækniskólans NST.
Raftækniskólinn er með spjallsíðu (hóp) á Facebook.

Hvernig sæki ég um?

Sækja um hnappur er hér á síðunni.

Spurningar

Hafðu samband og við svörum þér um hæl!

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.
Var efnið á síðunni hjálplegt?
Frábært það eru góðar fréttir!