fbpx
Menu

Innsýn í námið

Tækni og ráðgjöf

Námið í tækniteiknun gerir þér kleift að öðlast þá þekkingu og færni sem tækniteiknurum er nauðsynleg í störfum sínum við gerð teikninga og frágang ýmiskonar hönnunarvinnu á teiknistofum fyrirtækja, ráðgefandi verkfræðinga og arkitekta.

Ennfremur lærir þú  að annast kerfisstjórnun teiknikerfa, framsetningu og kynningu gagna, skipulagningu og stjórnun skjalavistunar og önnur sérhæfð teikni‐ og skrifstofustörf.

Brautarlýsing

TT17 Tækniteiknun

Tækniteiknari vinnur teikningar í samræmi við gildandi reglugerðir, staðla og teiknireglur. Hann vinnur með ýmis teikniforrit, setur upp vinnuumhverfi auk þess sem hann vinnur að framsetningu og útgáfu teikninga auk tilheyrandi gagna. Tækniteiknari annast skipulagningu og vistun skjala, teikningaskrár og teikninganúmerakerfi og ber ábyrgð á að teikningaskrár séu uppfærðar og réttar. Þegar nemandi lýkur námi í tækniteiknun útskrifast hann með formlegum hætti og fær útgefið prófskírteini sem veitir rétt til að nota starfsheitið tækniteiknari og starfa sem slíkur innan greinarinnar.

Almennar upplýsingar

Inntökuskilyrði

Ein­ungis er inn­ritað í tækniteiknun á haustönn (umsóknartímabli mars til maí).

Nemendur hafi lokið grunnskóla og 45 einingum í framhaldsskóla. Þar af þurfa þeir að hafa lokið að minnsta kosti 10 einingum í lífsleikni og menningarlæsi/félagsgreinum á 1.þrepi og 5 einingum í íþróttum. Enn fremur hafi nemendur lokið 30 einingum í íslensku, ensku og stærðfræði á 2. þrepi – tveimur áföngum í hverri grein.

Hafi nemandi ekki lokið þeim eru þær teknar á  tveimur önnum áður en byrjað er á faggreinunum.

Ein­göngu er tekið inn í námið á haustin.

Að loknu námi

Nemendur útskrifast sem tækniteiknarar og er meðalnámstími sex annir í skóla. Námið er góður grunnur, hvort sem stefnt er á frekara nám á háskólastigi eða beint á vinnumarkað. Hægt að taka viðbótarnám til stúdentsprófs.

Tækniteiknarar starfa við teikni- og hönnunarvinnu á teiknistofum fyrirtækja, ráðgefendur verkfræðinga, arkitekta, ríkisstofnana og bæjarfélaga svo eitthvað sé nefnt.

FAQ

Spurt og svarað

Hvað kostar námið?

Sjá upplýsingar um skólagjöld í gjaldskrá Tækniskólans.

Er námið lánshæft?

Menntasjóður námsmanna veitir allar upplýsingar um lánshæfi náms á menntasjodur.is

Eru efnisgjöld?

Nei, efnisgjöld eru innifalin í skólagjöldum.

Hvenær hefst kennsla?

Sjá upplýsingar í skóladagatali Tækniskólans.

Hvar fer kennslan fram?

Kennslan í tækniteiknun fer fram á Skólavörðuholti og Hafnarfirði, Flatahrauni 12.

Nánari upplýsingar um staðsetningu og húsnæði Tækniskólans.

Er mætingarskylda?

Já, hér má sjá nánari reglur um skólasókn í Tækniskólanum.

Get ég tekið stúdentspróf af brautinni?

Nemandi sem er í starfsnámi á framhaldsskólastigi á kost á viðbótarnámi til undirbúnings námi á háskólastigi. Slíku námi lýkur með stúdentsprófi.

Er nemendafélag?

Nánari upplýsingar um félagslíf og nemendafélög Tækniskólans.

Hvernig sæki ég um?

Sækja um hnappur er hér á síðunni.

Spurningar

Hafðu samband og við svörum þér um hæl!

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.
Var efnið á síðunni hjálplegt?
Frábært það eru góðar fréttir!