fbpx
Menu

Fréttir

15. júní 2023

Flugdagur Flugsafns Íslands

Árlegur Flugdagur Flugsafns Íslands verður haldinn á Akureyri laugardaginn 17. júní kl. 14:00–17:00.

Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá í boði:

  • Flugmódelfélag Akureyrar verður með flugmódel til sýnis
  • Flugskóli Akureyrar og Flugakademía Keilis verða með kynningu á flugnámi
  • Flugskóli Akureyrar býður gestum að prufa tölvuflughermi
  • Fjöldi flugvéla og annarra flygilda verður til sýnis á svæðinu
  • Félagar í Fornbíladeild Bílaklúbbs verða með bíla til sýnis á svæðinu
  • Flugsýningin hefst kl. 15:00
  • Circle Air býður upp á útsýnisflug að flugsýningu lokinni

Fulltrúar Tækniskólans verða á svæðinu og kynna nám í flugvirkjun.