16. október 2019
Adobe Sýndarvélar

Fyrst þarf að byrja á því að skrá sig inn á Adobe sýndarvél. Leiðbeiningar um hvernig á að skrá sig inn eru hér: Tækniskólaskýið
Þegar að komið er að velja sýndarvél þá opnið þið Adobe möppuna og veljið það forrit sem þið viljið nota.
Eftir að þið eruð komin inn á sýndarvélina opnast Adobe Creative Cloud. Þið þurfið að skrá ykkur inn. Það er hægt að nota Adobe Creative Cloud account sem þið hafið búið til, búa til nýjan Adobe Creative Cloud account með því að smella á Get an Adobe ID eða skrá sig inn með Facebook. Þegar að þið hafið skráð ykkur inn á Creative Cloud getið þið byrjað að nota Adobe forritin.