fbpx
en
Menu
en

Adobe – fjarlægja af PC

31. október 2019

Adobe – fjarlægja af PC

ATH: Áður en ferlið er hafið þarf að passa að það sé slökkt á öllum Adobe forritum.

1. Náðu í Adobe hreinsiforritið

Smelltu hér til að sækja tólin sem þú þarft til að fjarlægja Adobe.
Hérna þarftu að skrá þig inn með Tækniskóla aðganginum þínum:

Innskráning á Microsoft portal
ATH : Ef þú veist ekki Tækniskóla aðganginn þinn þá skalt þú smella hér

Opnaðu “Adobe” skjalið svo farðu í “PC”  og smelltu á “Download” takkan á „PC ADOBE.zip“

Skref sem þarf að taka til að niðurhlaða Adobe fyrir pc

2. Afþjappaðu möppuna

Byrjaðu á því að afþjappa möppuna “PC ADOBE”, í henni þarf líka að afþjappa möppunni “AdobeCreativeCloudCleanerTool” með að hægri smella á skjalið og ýta á “Extract All”.

Afþjöppun á Adobe tólum

3. Hreinsaðu Adobe

Í “AdobeCreativeCloudCleanerTool” möppunni þarf að keyra “AdobeCreativeCloudCleanerTool” með því að tvísmella á það, ýttu á „Yes“ þegar tölvan þín spyr þig hvort þú viljir veita tólinu réttindi til að gera breytingar. Næst kemur svarthvítur gluggi þar sem þú þarft að ýta á “e” og svo “Enter” takkann.

hvernig á að keyra Adobe Cleaning Tool

Næst kemur gluggi sem spyr þig hvaða Adobe forrit viltu fjarlægja, hérna þarf að ýta á „1“ og svo á „Enter“ takkann.

Adobe Cleaning Tool fyrsti valkosturinn

Næst kemur gluggi sem mun sýna þér öll Adobe forrit sem eru á tölvunni þinni,
hérna þarf að passa sig að velja „Clean All“ valkostinn út af því að fjöldi valkosta breytist hér eftir fjölda Adobe forrita á tölvunni.

Seinasti valkostur i Adobe Cleaning Tool

Þú verður spurð/ur hvort þú er viss með þetta þá þarf að ýta á „y“. Þetta mun taka smá tíma en þegar það klárast þá þarftu að endurræsa tölvuna.

Mynd sem sýnir hvað gerist þegar Adobe Cleaner Tool klárast

4. Staðfestu að öll Adobe forrit eru fjarlægð

Það kemur stundum fyrir að það eru eitt eða tvö Adobe forrit ennþá á tölvunni eftir endurræsinguna, til að athuga það þá þarftu að fara í Start menu með því að ýta á „Windows“ takkann. Ef þú sérð einhver Adobe forrit ennþá til staðar þá þarftu að hægri smella á þau og ýta á „Uninstall“.

Synir hvernig á að Fjarlægja Adobe af tölvunni
ATH : Ef þú sérð engin Adobe forrit þá hefur þér tekist að fjarlægja allt og þú getur þú hætt hér.

Hérna fyrir hvert Adobe forrit sem þú sérð, það þarf að hægri smella á hvert og ýta á “Uninstall”, Þetta mun oftast henda upp villu sem segir að þetta forrit er ekki lengur til sem er í lagi. hvernig á að stroka Adobe af tölvu

5. Hreinsaðu start gluggann

Opnaðu File Explorer og farðu á eftirfarandi slóð: „C:\ProgramData\Microsoft\Windows\Start Menu\Programs“.

Eyddu öllum Adobe forritum sem þú sérð i möppunni.

Hvernig á að eyða Adobe úr start glugga

ATH : Ef þú sérð ekki „ProgramData“ möppuna, þá þarf að ýta á „View“ takkan og haka við „Hidden items“ valkostinn.

Öll Adobe forrit ættu núna að vera farin af tölvunni þinni.