Spannarkerfi þýðir að hefðbundinni önn er skipt upp í tvær spannir, spönn 1 og spönn 2. Þetta þýðir að nemendur eru í færri áföngum á hverri spönn eða 2–3 áföngum. Áfangar eru kenndir oftar í viku heldur en áður, sjá leiðbeiningar og fyrirkomulag
1. Áfangi getur verið í boði bæði á spönn 1 og á spönn 2
2. Áfangi einungis kenndur á spönn 1
3. Áfangi einungis kenndur á spönn 2
4. Áfangi er kenndur yfir báðar spannirnar eins og áður
Í upphafi hverrar annar eftir að opnað hefur verið fyrir stundatöflur, geta nemendur óskað eftir breytingum á stundatöflu í Innu, sjá auglýstan frest á vef skólans. Töflubreytingar eru ekki gerðar á öðrum tíma. Töflubreytingar eru gerðar rafrænt í Innu og eingöngu fyrir þá sem ekki fengu áfanga sem þeir höfðu valið í töflu, eða ef verulegir annmarkar eru á töflum samkvæmt vali. Það eru nokkur atriði sem þarf að hafa í huga varðandi töflubreytingar og getur valdið því að óskum um töflubreytingar er hafnað:
• Ekki er hægt að óska eftir að komast í hóp sem er yfirbókaður.
• Ekki er hægt að óska eftir að komast í áfanga sem er í 50 – 100% árekstri við annan áfanga sem er fyrir í töflu.
• Það að fækka áföngum getur tafið námsframvindu á seinni önnum og seinkað útskrift.
• Því er alltaf best að ræða við skólastjóra eða námsráðgjafa áður en óskað er eftir að fækka áföngum.
Vegna mikils álags getur verið um árekstra að ræða í stundatöflu nemenda. Þegar árekstrar eru velur nemandinn að mæta í þann tíma sem hann telur meira áríðandi, í samráði við kennara.
Kennarar skrá M þar sem nemandinn mætir en F þar sem hann mætir ekki. Sjálfvirk næturvinnsla í Innu skráir síðan A (árekstur) þegar báðir kennarar hafa skráð og þá reiknast ekki fjarvist á þann tíma
• Útskýringar á áfangaheitum – pdf
Útskýring á stundatöflum:
Uppfært 1. febrúar 2023
Áfangastjórn