Hjá Tækniskólanum eru tvö kennslukerfi í notkun, Canvas og Inna.
Í Canvas nálgast nemendur námsefni, verkefni, skilafresti og upplýsingar frá kennurum. Þar fer stór hluti af daglegu námi og samskiptum í áföngum fram.
Í Innu má meðal annars finna stundatöflur, námsferil, einkunnir, mætingu og aðrar upplýsingar sem tengjast náminu og skólagöngunni.
Ef upp koma vandamál við notkun kerfanna er hægt að fá aðstoð hjá tölvuþjónustu skólans. Einnig má leita upplýsinga og aðstoðar á bókasafni eða í upplýsingamiðstöð skólans.