Sótt er um skólavist í Tækniskólanum á vef menntamálastofnunar eða Innu. Umsóknarfrestir eru auglýstir á vef skólans. Á hverri önn velja nemendur áfanga fyrir næstu önn í samráði við umsjónarkennara sína. Frestur til að ljúka því er auglýstur á vef skólans.
Sótt er um skólavist í Tækniskólanum á innritunarvef menntamálastofnunar. Umsóknarfrestir eru auglýstir á vef skólans. Á hverri önn velja nemendur áfanga fyrir næstu önn í samráði við umsjónarkennara sína. Frestur til að ljúka því er auglýstur á vef skólans.
Atvinnuréttindi í skipstjórn og vélstjórn er ekki hægt að fá nema að uppfylltum ákveðnum, heilsufarslegum skilyrðum. Auk þess er vísað til reglugerðar um ákvæði er varða lágmarksaldur fyrir atvinnuréttindi í skipstjórn og vélstjórn.
Dreifnám er nám sem sameinar kosti fjar- og kvöldnáms. Í dreifnámi getur áfangi verið kenndur að öllu leyti í fjarnámi, en þá fer kennsla fram í gegnum kennsluvef skólans eða að öllu leyti í staðbundnu námi. Einnig geta áfangar verið kenndir að hluta í fjarnámi og hluta í staðbundnum lotum.
Til að geta hafið iðnmeistaranám verður nemandi að hafa lokið sveinsprófi í viðkomandi iðngrein.
Mögulegt er að meta allt nám sem nemendur hafa stundað utan brautar t.d. úr öðrum skóla, raunfærnimat, undanþágur frá námskröfum og vinnu sem nemandi vill láta meta til eininga á innskráningarbraut. Sjá nánar VKL-218. Með umsókn um skólavist skal leggja fram staðfest afrit prófskírteinis/brautskráningar eða annarra gagna sem meta á, eða gefa Tækniskólanum heimild til að sækja fyrri námsferil í Innu.
Almennt eru skólagjöld Tækniskólans ekki endurgreidd. Í sérstökum tilfellum er hægt að sækja um endurgreiðslu til skólameistara og skulu þá færð góð rök fyrir beiðninni. Ef um endurgreiðslu er að ræða er skráningargjaldi alltaf haldið eftir. Allar slíkar beiðnir skulu berast áður en að skóli hefst. Eftir að skóli er hafinn eru skólagjöld ekki endurgreidd.
Uppfært 09.04.2021
Áfangastjórn