Rafvélavirkjun tekur á rafmótorum, rafvélastýringum og skynjaratækni en einnig er fjallað um varaaflsbúnað og rafknúin farartæki.
Námið veitir innsýn inn í þá tækni sem notuð er í iðnaði og í rafvæðingu farartækja.
Námið er alls 5 áfangar eða 25 einingar sem bætast ofan á rafvirkjanám en sveinspróf í rafvirkjun er inntökuskilyrði. Að loknu námi þarf nemandi að taka 30 vikur hjá meistara og má þá þreyta sveinspróf.
Nemendur sem hyggjast innritast í rafvélavirkjun þurfa að hafa lokið sveinsprófi í rafvirkjun.
Inntökuskilyrði er að nemandi hafi lokið sveinsprófi í rafvirkjun.
Rafvélavirkjun er löggilt iðngrein. Námið í rafvélavirkjun er alls 5 áfangar eða 25 einingar sem bætast ofan á rafvirkjanámið (2 annir) og vinnustaðanám samkvæmt hæfnikröfum ferilbókar að hámarki 30 vikur. Almennt er miðað við að nemendur hafi lokið starfsþjálfun í síðasta lagi áður en nám hefst í lokaáföngum fagbrautar eða samhliða.
Námsframvinda vinnustaðarnáms miðast við að nemandinn sé búinn að uppfylla að lágmarki 80% af hæfniviðmiðum í ferilbók faggreinar til að innritast í lokaáfanga brautar.
Prófskírteini af fagbraut ásamt því að starfsþjálfun sé lokið, veitir rétt til að sækja um sveinspróf í viðkomandi grein. Sveinspróf veitir rétt til að hefja nám í Meistaraskóla.
Einnig er hægt að ljúka viðbótarnámi til undirbúnings námi á háskólastigi en slíku námi lýkur með stúdentsprófi.
Sjá upplýsingar um skólagjöld í gjaldskrá Tækniskólans.
Menntasjóður námsmanna veitir allar upplýsingar um lánshæfi náms á menntasjodur.is
Nei, efnisgjöld eru innifalin í skólagjöldum.
Þess má geta að sú stefna hefur verið tekin upp hjá Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins að allt námsefni í rafiðngreinum verði ókeypis nemendum. Þetta er langt komið og sárafáar bækur sem nemendur þurfa að kaupa til námsins.
Námsefni er að finna á rafbok.is.
Sjá upplýsingar um skóladagatal og viðburði.
Kennslan í Rafvélavirkjun fer fram á Skólavörðuholti.
Já, nánari reglur um skólasókn er að finna hér á vefnum.
Í Raftækniskólanum er starfandi skólafélag sem hefur það hlutverk að tengja stjórnendur skólans við nemendur og koma með athugasemdir og óskir um hluti sem betur mega fara. Jafnframt er skólafélagið tengiliður stjórnenda við nemendur. Fulltrúi skólafélagsins situr fundi með stjórnendum reglulega sem og fagráði skólans.
Skólafélagið skipar nefndir til að sjá um félagslíf innan skólans og uppákomur.
Nemendur sjá sjálfir um að móta, þróa og byggja upp félagsstarf. Saman mynda skólafélög innan Tækniskólans Nemendasamband Tækniskólans NST.
Raftækniskólinn er með spjallsíðu (hóp) á Facebook.
Sækja um hnappur er hér á síðunni.