Mat úr fyrra námi miðast við að metnir eru sambærilegir áfangar á þeirri braut sem stefnt er að, ef nemandi er innritaður í skólann. Ef óskað er eftir mati á námi áður en til umsóknar kemur þá þarf að senda beiðni um slíkt á skrifstofu skólans [email protected] og greiða 7500 kr. á skrifstofu eða með bankamillifærslu. Greiðslukvittun auk matsgagna skal þá send viðkomandi skólastjóra sem metur. Ekki er metið áður en greitt er.
Með beiðninni þurfa eftirfarandi upplýsingar að liggja fyrir:
• Fullt nafn, kennitala og símanúmer.
• Á hvaða námsbraut er óskað eftir mati.
Gögn erlendis frá:
• Ef gögn eru erlendis frá, þarf prófskírteini að vera á upprunalegu tungumáli, stimplað af þeim skóla sem veitti það.
• Þýðing á prófskírteininu á íslensku eða ensku (þýtt af viðurkenndum aðila).
• Upplýsingar um innihald og umfang námsins.
ENSK3VG05CT / ENSK3ES05CT Tæknienska fyrir sjófarendur – fagenska
Athugið að ekki er hægt að meta almennan 3. þreps enskuáfanga á móti ENSK3VG05CT / ENSK3ES05CT sem er á brautum Véltækniskólans og Skipstjórnarskólans. Áfanginn er tæknienska fyrir sjófarendur – fagenska og er sérstakur IMO áfangi sem endurspeglar STCW kröfur um enskukunnáttu samkvæmt A-II/1 og A-III/1, og byggir á uppbyggingu IMO Model Course 3.17.
Afreksíþróttir
Nemandi sem stundar a.m.k. 10 klukkustunda þjálfun á viku í meistaraflokki með íþróttafélagi innan ÍSÍ, undir stjórn þjálfara, getur sótt um undanþágu frá verklegum íþróttum þá önnina og fengið einingar fyrir þjálfun sína. Það þarf að sækja um undanþáguna við upphaf námsannar með því að skila inn samningi til skólastjóra.
Nemendur fá 2 einingar á önn að gefnu samþykki skólans. Bóklegi íþróttaáfanginn er ekki metinn. Það er hægt er að nýta afreksíþróttaeiningar á móti skylduáfögnum í verklegum íþróttum á braut, valáföngum á braut eða á móti falli ef til þess kemur.
Gögnum skal skilað til skólastjóra.
Tónlist
Skólinn metur til eininga tónlistarnám sem lokið er hjá viðurkenndum tónlistarskóla.
Að hámarki er hægt að fá metnar 15 einingar í tónlistarnámi. Eftirfarandi viðmið gilda:
Prófskírteinum skilað til skólastjóra.
Knapamerki
Skólinn metur til eininga knapamerkis sem lokið er hjá viðurkenndum fræðsluaðila.
Að hámarki er hægt að fá metnar 15 einingar fyrir knapamerki. Eftirfarandi viðmið gilda:
Gögnum skal skila til skólastjóra.
Skyndihjálp
Skólinn metur til eininga námskeið í skyndihjálp, sem er a.m.k. 12 klst., frá viðurkenndum aðila eða sem nemandi hefur klárað frá öðrum framhaldskóla.
Gögnum skal skila til skólastjóra.
Félagsstörf innan skólans
Nemendur geta fengið einingar fyrir ýmis félagsstörf á þeim tíma sem þeir stunda nám við skólann. Einingafjöldi er metinn af félagsmálafulltrúa skólans og í samræmi við námskrá skólans.
Hægt er að nýta 12 einingar fyrir félagsstörf bæði á móti valáföngum á braut eða á móti falli ef til þess kemur.
Að hámarki er hægt að fá 5 einingar á önn fyrir félagsstörf.
Mat á námi fyrir utan Tækniskólans
Hægt er að óska eftir mati á öðru námi en tilgreint hér er fyrir ofan hafi það farið fram hjá viðurkenndum aðila. Skila þarf gögnum sem tilgreinir innihald og umfang námsins auk staðfestingar á námslokum.
Gögnum skal skila til skólastjóra.
Uppfært 26. mars 2026
Áfangastjórn