Með náminu aflar þú þér atvinnuréttinda til starfa á skipum styttri en 24 metrar (að loknum siglingatíma).
Námsbraut til A-réttinda er fyrst og fremst fagnám til að öðlast þessi tilteknu skipstjórnarréttindi og ekki hugsuð fyrir nemendur sem ætla í lengra nám (þeir velji námsbraut til B eða C réttinda). Aldurstakmark er 20 ár og gert er ráð fyrir að atvinnuþátttaka hafi veitt nemanda þann grunn sem þarf til að takast á við námið. Jafnframt er vakin athygli á atvinnuréttindanámskeiði til að starfa á skipum styttri en 15 m (smáskipapróf) og svo skemmtibátaprófi sem veitir heimild til að sigla skipum allt að 24 m lengd en þó ekki í atvinnuskyni (mótor- og seglbátar, má sigla með farþega en ekki gegn gjaldi).
Námið er bæði bóknám og verknám og er kennt í Reykjavík (Háteigsvegi). Lágmarks námstími í skóla er 2 annir. Eingöngu er opið fyrir umsóknir í dagnám fyrir haustönn en opið er fyrir umsóknir í dreifnám báðar annir. Allir áfangar brautarinnar eru í boði í dreifnámi.
Skipstjórnarnám skiptist í meginatriðum í sjö námsstig sem að námi loknu veita hvert um sig, að öðrum skilyrðum uppfylltum, rétt til að fá útgefið skírteini til starfa sem skipstjórnarmaður. Þetta námsstig (þriðja) er til réttinda til að gegna stöðu skipstjóra eða stýrimanns á skipum sem eru styttri en 24 metrar að skráningarlengd og stöðu undirstýrimanns á skipum að 45 metrum að skráningarlengd í innanlandssiglingum.
Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri við innritun. Gert er ráð fyrir að atvinnuþátttaka fram að því veiti nemanda þann grunn sem þarf til að takast á við námið og því er reynsla af sjómennsku mjög æskileg.
Athuga að námsbraut til A-réttinda er fyrst og fremst fagnám til að öðlast þessi tilteknu skipstjórnarréttindi og ekki hugsuð fyrir nemendur sem ætla í lengra nám. Þeir velja námsbrautir til B eða C réttinda.
Verklagsregla um námsmat og skráningu einkunna |
Sérreglur um námsmat í tilteknum áföngum í skipstjórn |
Mat á fyrra námi og námi úr öðrum skólum |
Þú öðlast rétt til að fá útgefið skírteini sem ýmist stýrimaður eða skipstjóri að loknum siglingatíma og öryggisfræðslu – fyrir þetta réttindastig geta réttindin verið stýrimaður og skipstjóri á skipum styttri en 24 m að skráningarlengd í strandsiglingum og innanlandssiglingum, og undirstýrimaður á skipum styttri en 45 m í innanlandssiglingum.
Vakin er athygli á atvinnuréttindanámskeiði til að starfa á skipum styttri en 12 m (smáskipapróf) og svo skemmtibátaprófi sem veitir heimild til að sigla skipum allt að 24 m lengd en þó ekki í atvinnuskyni (mótor- og seglbátar, má sigla með farþega en ekki gegn gjaldi) – viltu kannski byrja þar?
Námsbraut til A-réttinda er fyrst og fremst fagnám til að öðlast skipstjórnarréttindin og ekki hugsuð fyrir nemendur sem ætla í lengra nám. Þeir nemendur ættu frekar að velja námsbraut fyrir B-réttindi (með stúdentsleið) eða C-réttindi sem lýkur með stúdentsprófi.
Menntasjóður námsmanna veitir allar upplýsingar um lánshæfi náms á menntasjodur.is
Kennsla í skipstjórn fer fram í Sjómannaskólanum Háteigsvegi.
Nemendur sem hefja nám í Skipstjórnarskólanum verða að koma með eigin öryggisskó, hlífðargleraugu og heyrnahlífar sem skylt er nota í verklegu véltækninámi skólans og við aðra vinnu þar sem kennarar krefjast þess að nemendur noti hlífðarbúnað.
Já, nánari reglur um skólasókn má finna hér.
Í Tækniskólanum er öflugt og fjölbreytt félagslíf. Innan hvers skóla er starfandi skólafélag sem heldur utan um félagslíf skólans, klúbba, keppni innan og utan skólans og aðrar uppákomur. Þannig hafa nemendur í skipstjórn á Háteigsvegi með sér félag sem heldur uppi félagslífi. Nemendur sjá sjálfir um að móta, þróa og byggja upp þetta starf.
Netfang félagsins er [email protected].
Saman mynda nemendafélög í Tækniskólanum – Nemendasamband Tækniskólans, NST.
Hér má lesa nánar um félagslíf Tækniskólans.
Fyrir dagnámið er greitt fast gjald fyrir eina önn í einu, sjá gjaldskrá Tækniskólans. Fyrir áfanga í dreifnámi er greitt einingagjald fyrir sérhvern áfanga og eitt skráningargjald á umsókn.
Já, almennir framhaldsskólaáfangar eru almennt metnir og einhverjum tilvikum nám úr háskólum og sérskólum sem tengjast fagáföngum námsins (fagáfangar). Í skipstjórnarréttindum A eru þó engir almennir áfangar, en fagáfanga er mögulega hægt að meta úr öðru sambærilegu námi, t.d. sjávarútvegsfræðum. Sjá nánar hér.
Já, þeir sem hafa náð 23 ára aldri og hafa 3 ára starfsreynslu í faginu geta sótt um að fara í raunfærnimat, en það nær fyrst og fremst til fyrstu áfanga (kenndir á A, B og mögulega C stigi). Sjá nánar hér.