fbpx
Menu

Hér getur þú tilkynnt einelti, áreitni, kynferðislegt ofbeldi og annað ofbeldi.

Fylltu út formið hér að neðan ef þú vilt tilkynna einelti, áreitni eða ofbeldi sem þú hefur þú orðið fyrir, eða orðið vitni að.

Athugið að skóla­meistari og aðstoðarskólameistari Tækniskólans fá tilkynninguna. Þeir eru bundnir trúnaði og málið er alltaf unnið í samráði við manneskjuna sem tilkynnir atvikið.

Tilkynna má nafnlaust.

Hvert get ég að leitað?

Ef þú verður fyrir einelti, áreitni og/​​eða ofbeldi getur þú leitað til eft­ir­tal­inna aðila:

Þú getur hringt, sent tölvu­póst eða farið og hitt viðkom­andi.

 

Einnig er hægt að hafa sam­band við eft­ir­far­andi aðila vegna kynferðisbrota:

Á upp­lýs­ingasíðu skólans einelti, áreit og ofbeldi er að finna spurn­ingar og svör um einelti, áreiti og ofbeldi ásamt fleiri upp­lýs­ingum.

Hvernig er tekið á málinu?

Málið er alltaf rann­sakað og eins mik­illa upp­lýs­inga aflað og hægt er. Málið er alltaf unnið í samráði við og með samþykki þolanda. Það fer eftir alvar­leika brotsins hvernig tekið er á málinu. Sem dæmi getur ger­andi fengið áminn­ingu og brott­vísun ef hann brýtur af sér aftur. Þolandi fær stuðning og þá aðstoð sem hann þarf og fylgst er með hvort áreitni og/​​eða ofbeldið end­ur­tekur sig. Ef málsaðilar eru undir 18 ára er fundað með þeim og for­eldrum.

 

Sjá verklags­reglu VKL-107 Viðbrögð við einelti, áreitni og ofbeldi og verklagsreglu VKL-412 Meðferð, eineltis, áreitni og ofbeldismála

Á upp­lýs­ingasíðu skólans einelti, áreit og ofbeldi er að finna spurn­ingar og svör um einelti, áreitni og ofbeldi ásamt fleiri upp­lýs­ingum.