fbpx
Menu

Heimsóknir

Heimsóknir

Grunnskólanemendur hafa tækifæri á að heimsækja Tækniskólann, fá innsýn í skólastarfið og kynna sér námið sem þar er í boði.

Við tökum einnig á móti öðrum hópum sem hafa áhuga á að kynna sér starfið í skólanum.

Heimsóknir


Nemendahópur í heimsókn

Tækniskólinn tekur vel á móti nemendum úr grunnskóla ef þeir hafa áhuga á að  skoða skólann og fá kynn­ingu á náminu. Miðað er við 10 til 25 einstaklinga í hverjum hóp og tekur hver heimsókn u.þ.b. eina klukkustund.

Vakin er athygli á því að umræddar heimsóknir eru ætlaðar nemendum í 10. bekk grunnskóla og verður hver heimsókn að vera bókuð af fulltrúa viðkomandi grunnskóla og/eða foreldri sem óskar eftir heimsókn fyrir ákveðinn hóp.

Hægt er að bóka heimsókn með því að hafa samband við Ólaf Svein Jóhannesson, deildarstjóra markaðs- og kynningardeildar, en hann veitir jafnframt allar nánari upplýsingar um heimsóknir í skólann. Aðrir hópar geta einnig haft samband við hann sé áhugi á að heimsækja skólann.

 

 

Húsnæði


Kennsla í Tækniskólanum fer fram á nokkrum stöðum og er hægt að bóka heimsókn í eftirfarandi byggingar skólans:

 

Skólavörðuholt

Stýrimannaskólinn

Í húsnæði skólans á Skólavörðuholti eru m.a. námsbrautirnar: húsasmíði, húsgagnasmíði, rafvirkjun, rafeindavirkjun, gull- og silfursmíði, málaraiðn, veggfóðrun- og dúklögn, tækniteiknun, hársnyrtiiðn, kjólasaumur, klæðskurður, íslenskubraut fyrir útlendinga, starfsbraut, náttúrufræðibrautir, K2 og hönnunar- og nýsköpunarbraut.

 

Háteigsvegur

Í húsnæði skólans við Háteigsveg – Sjómannaskólanum – eru m.a. námsbrautirnar: vélstjórn, skipstjórn, ljósmyndun, grafísk miðlun, prentiðn, bókband og tölvubraut.

 

Hafnarfjörður

Í húsnæði skólans í Hafnarfirði eru m.a. námsbrautirnar: húsasmíði, rafvirkjun, rafeindavirkjun, pípulagnir, vélvirkjun, stálsmíði, rennismíði og starfsbraut.

 

 

Kynningarefni


Við bendum áhugasömum fjölbreytt kynningarmyndbönd á youtube og vefsíðu skólans þar sem finna má upplýsingar um námið og starfið í Tækniskólanum.

Skólinn er einnig virkur á samfélagsmiðlum og hvetjum við ykkur til þess að kíkja á Facebook og Instagram síður skólans.

Einnig er hægt að hafa samband við náms- og starfsráðgjafa fyrir nánari upplýsingar um nám í Tækniskólanum.