Þú öðlast þekkingu, færni og hæfni sem krafist er til sveina í iðngreininni stálsmíði. Lærir að takast á við þau viðfangsefni sem stálsmiðir inna af hendi s.s. nýsmíði og viðhald málm- og stálmannvirkja úr mismunandi gerðum málmplatna, stangarefnis og rörum.
Námið er verkefnatengt og bæði bóknám og verknámið er kennt í Hafnarfirði. Nemendur eru teknir inn í skólann bæði á haustönn og vorönn, og áfangaframboð er miðað við að nemendur hefji nám að hausti.
Nokkrir áfangar í eru í boði sem dreifnám, bæði bóklegir og verklegir áfangar með staðlotum.
Stálsmiður er lögverndað starfsheiti og stálsmíði er löggilt iðngrein þar sem stálsmíði er samheiti og tekur m.a. til stálvirkja- og stálskipasmíði. Málmsuðumaður getur fengið alþjóðlegt suðuskírteini og hæfnisvottorð á sérsviðum sínum. Markmið námsins er að gera nemendum kleift að takast á við þau viðfangsefni sem stálsmiðir og málmsuðumenn inna af hendi, þ.e. nýsmíði og viðhald málm- og stálmannvirkja, bæði stórra sem smárra. Námið samanstendur af bóklegu og verklegu námi í skóla ásamt starfsþjálfun í fyrirtækjum. Námið tekur að lágmarki þrjú heil ár og við lok þess staðfesta nemendur kunnáttu sína og færni í sveinsprófi sem veitir rétt til starfa í iðninni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.
Miðað er við að nemendur hafi náð lágmarkseinkunn C úr grunnskóla í íslensku, ensku og stærðfræði (eða 5 í eldra kerfi).
Nemendum sem þess þurfa er boðið upp á undirbúningsnám málm- og véltæknigreina á meðan lágmarksárangri í kjarnagreinum er náð.
Þú lýkur náminu með burtfararprófi og að lokinni starfsþjálfun geturðu tekið sveinspróf sem veitir þér rétt til að starfa í iðngreininni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.
Þeir sem valið hafa stúdentsleið ljúka jafnframt stúdentsprófi.
Í byrjun árs 2017 var komið að því, ég ætlaði að gera eitthvað meira en bara vinna. Mig langaði að gera eitthvað sem ég hafði virkilega áhuga á. Var búinn að velta þessu fyrir mér í kannski tvö ár og svo sá ég auglýsingu á Facebook fyrir flugvirkjanám Tækniskólans. Auglýsingin poppaði auðvitað upp á mínum skjá því ég hef haft brennandi áhuga á flugvélum síðan ég var 4 ára og er með fullt að flugvélatengdum síðum á Facebook.
Ég sé ekki eftir að hafa sótt um þetta sérnám því ég kynntist fólki frá öllum stéttum samfélagsins. Fólk sem hafði mismikinn áhuga en vildi gera það sama og ég, finna sér eitthvað sem væri öðruvísi en þau höfðu verið að vinna við. Gaman var að fylgjast með þeim öllum fá aukinn áhuga fyrir þessum tækjum háloftanna með mér.
Námið er skemmtilegt og mjög fjölbreytt en á köflum ansi strembið og voru flestir kennararnir mjög færir að einfalda efnið fyrir manni. Það sem ég tek úr þessu er auðvitað námið og kunnátta mín að leysa vandamál en þessi tvö ár með bekkjarfélögunum stendur upp úr. Tveir mánuðir fyrir norðan á Akureyri í verklegu námi virkilega þéttu hópinn og er maður heppinn að hafa eignast svona marga vini.
Vélstjórnarnámið er mjög fjölbreytt, inniheldur mikið af nytsamlegum upplýsingum og hefur frábæra kennara sem miðla þekkingu eins og þeim einum er lagið. Þetta nám opnar margar dyr og gerir að verkum að það er fátt sem að flækist fyrir manni í framtíðinni. Ég mæli eindregið með þessu námi ef að þú ert forvitin/n um virkni hluta og/eða viðgerðir.
„Fjölbreytnin í náminu er góður grunnur. Ég finn að ég stend betur að vígi en margir sem eru með mér í verkfræðináminu hér í Háskólanum.“
Nemendur sem hefja nám í Véltækniskólanum verða að koma með eigin öryggisskó, hlífðargleraugu og heyrnahlífar sem skylt er nota í verklegu námi skólans og við aðra vinnu þar sem kennarar krefjast þess að nemendur noti hlífðarbúnað.
Stálsmiðir starfa einkum hjá framleiðslu-, verktaka- og byggingafyrirtækjum sem hanna, smíða og gera við vélar, reisa mannvirki og viðhalda þeim, smíða, viðhalda og gera við skip og veita aðra þjónustu sem byggist á meðferð og meðhöndlun málma.
IÐAN fræðslusetur sér um námssamninga fyrir málm- og véltæknigreinar. Sjá einnig næsta skref um störf í greininni.
Þú færð almennar greinar metnar og því styttist námið um allt að fjórðung.
Sjá upplýsingar í skóladagatali Tækniskólans.
Sjá upplýsingar um skólagjöld í gjaldskrá Tækniskólans.
Menntasjóður námsmanna veitir allar upplýsingar um lánshæfi náms á menntasjodur.is
Nei, efnisgjöld eru innifalin í skólagjöldum.
Já, hér má sjá nánari reglur um skólasókn í Tækniskólanum.
Nánari upplýsingar um félagslíf og nemendafélög Tækniskólans.
Sækja um hnappur er hér á síðunni.