Hér má finna tengla á ýmislegt sem getur komið að gagni við heimildaleit, ritgerðarskrif og verkefnavinnu. Hér má m.a. finna orðabækur, upplýsingagáttir, gagnasöfn og upplýsingar um heimildaskráningu.
Þessa síðu má nota til að leita að gögnum á bókasafni Tækniskólans.
Við vekjum athygli á því að nemendur skólans fá ársaðgang að Snöru heim á aðeins 990 kr. ef þeir skrá sig inn með Microsoft innskráningu og skólanetfangi.
Heimildaskráning – heimildaskrá skv. APA kerfi
Heimildaskráning – heimildaskrá skv. Chicago Manual of Style
Málið.is
Þessi vefgátt flettir upp í sjö orðasöfnum – gagnagrunnum. Mjög líklega hægt að finna allar skýringar á íslensku hér.
Beygingarlýsing íslensks nútímamáls
Á þessum vef er hægt að fletta upp beygingarmyndum íslenskra orða.
Snara.is
Á Snöru – vefbókasafni má finna úrval orðabóka en einnig er boðið upp á að fletta upp í bókum eins og Nöfn Íslendinga, Matarást, Samtíðarmenn 2003 og Kortabók 2004, auk vefja eins Söguvefs NB. Aðgangurinn er takmarkaður við tölvur á netsvæði Tækniskólans, sem nemendur og starfsfólk hafa aðgang að. Því miður er ekki hægt að nota aðganginn í gegnum vpn-kerfi starfsfólks. Nemendur skólans geta fengið ársaðgang að Snöru heim á aðeins 990 kr. ef þeir skrá sig inn með Microsoft-innskráningu og skólanetfangi.
Skrambi.is
Vefsíða þar sem hægt er að líma inn texta og láta leita að stafsetningarvillum.
Tilvitnun.is
Þarna er að finna málshætti, spakmæli, orðtök og fleira.
Íslenskt orðanet
Hvernig er best að orða það? Leit að samstæðum orðum og orðasamböndum og tengja þau við hugtök og merkingarflokka.
Orðabanki
Orðabanki íslenskrar málstöðvar. Eitt af hlutverkum orðabanka er að samræma orðanotkun innan skyldra og óskyldra greina. Hann á að safna fræðiheitum og sameina þau þannig að ekki séu á kreiki mörg heiti um sama fyrirbærið. Orðabanki Íslenskrar málstöðvar sinnir þessu hlutverki.
ÍSLEX
ISLEX er margmála orðabókarverk á vefnum með íslensku sem viðfangsmál og dönsku, sænsku, norskt bókmál, nýnorsku og færeysku sem markmál.
Tölvuorðasafnið
Vefaðgangur að 5. útgáfu Tölvuorðasafns sem kom út 2013, eingöngu á vefnum.
Leitir.is
Gögn sem eru aðgengileg í leitir.is koma víða að. Á síðari árum hefur stafrænum gagnasöfnum á vegum bókasafna og fjölmargra annarra fjölgað hratt. Flest þessara gagnasafna bjóða upp á eigin vefaðgang. Með leitir.is er notendum í fyrsta skipti gert kleift að leita í þessum gagnasöfnum frá einum stað. Í fyrstu verður boðið upp á efni úr Gegni, Bækur.is, Elib, Hirslu, Hvar.is, Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Skemmunni og Tímarit.is. Þetta er þó aðeins byrjunin, því stefnt er að því að bæta stöðugt við gögnum á leitir.is.
Leitir.is fyrir bókasafn Tækniskólans
Síða sem leitar í safnkosti bókasafns Tækniskólans.
Britannica
Skólaútgáfa af alfræðiorðabókinni
Gagnasafn Morgunblaðsins
Athugið að hér þarf lykilorð sem fæst hjá starfsmönnum bókasafnsins eða kennurum
Hagtölur
Á vef Hagstofu Íslands er gott yfirlit yfir ýmsar hagtölur
Hvar.is
Landsaðgangur að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum. Á hvar.is er ógrynni upplýsinga og til hægðarauka er efnið flokkað niður
Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn
Á heimasíðu Landsbókasafns Íslands-Háskólabókasafns er að finna áhugaverðar krækjur og mikið af upplýsingum um heimildaleit
Rafbók – Netbókasafn rafiðnaðarins
Hér má finna mikið af kennsluefni og verkefnum fyrir Raftækniskólann, notandi þarf að skrá sig inn.
Sjávarútvegur
Áhugaverðar heimildir og upplýsingar sem tengjast sjávarútvegi.
Táknmálsorðabókin
Ný íslensk táknmálsorðabók
Vísindavefurinn
Spurningar og svör um hvaðeina
WikiSöguvefurinn – Þar er fjallað um Egils sögu frá öllum hliðum, bæði er þar sögutextinn á íslensku og ensku.
Ísmúsvefurinn – þar er meðal annars þjóðsagnaarfurinn í munnlegri geymd á rafrænu formi. Hægt er að fletta upp á efnisorði, t.d. álfar, draugar eða nafni sagnaþuls.
Tímarit.is – Á tímarit.is er að finna yfir 1200 tímarit frá Íslandi, Færeyjum og Grænlandi. Síðan er stafrænt safn þar sem má til nálgast bæði dagblöð og tímarit frá upphafi útgáfu þeirra og til dagsins í dag. Safnið er opið öllum.
Einnig er hægt að nálgast fjölmörg tímarit, bæði erlend og íslensk sem tengjast námi í Tækniskólanum á bókasafni skólans.
Rafræn söfn
Á síðu Landsbókasafns Háskólabókasafns er búið að taka saman lista yfir rafræn gagnasöfn með fræðigreinum og tímaritsgreinum. Sum eru aðeins aðgengileg í Landsbókasafni en önnur eru opin. Upplýsingar um tegund aðgangs er að finna við hverja færslu.
Það er alls ekki nauðsynlegt að hafa bækurnar í höndunum til að lesa þær. Á netinu er að finna aragrúa af rafrænum bókum sem hægt er að lesa af skjánum eða prenta út. Hér eru krækjur á síður sem bjóða upp á aðgang að rafrænum bókum.
Rafbókasafnið er rafrænt bókasafn þar sem er hægt að fá lánaðar ýmsar skáldsögur og annað efni. Safnið er aðgengilegt þeim sem eru með gilt bókasafnsskírteini í almenningsbókasafni.
Hljóðbókasafn Íslands
Hljóðbókasafnið býður blindum, sjónskertum og lesblindum nemendum upp á að hala niður hljóðbókum af vef safnsins. Nánari upplýsingar um aðgang eru á vef Hljóðbókasafnsins og hjá námsráðgjöfum.
Lestu.is Á Lestu.is er boðið upp á bækur af ýmsu tagi til að lesa beint af tölvunni eða í þeim nýju tækjum sem útbúin hafa verið sérstaklega til þess og eru að ryðja sér til rúms.
Snerpa-netútgáfan
Hér er hægt að lesa rafrænar bækur á íslensku, s.s. þjóðsögur, Íslendingasögur, Biblíuna og fleira.
Gull og silfur – nám til sveinsprófs er rafbók sem Iðnú gefur út. Hún er þýðing á norskri kennslubók í gull- og silfursmíði, og verður fyrst um sinn aðeins aðgengileg á netinu. Bókin er sú fyrsta sinnar tegundar á íslensku.
Hér má finna leiðbeiningar sem nemendur geta nýtt sér við ritgerðaskrif.