fbpx
Menu

Fréttir

05. apríl 2021

Sveinspróf

Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum sem kenndar eru í Tækniskólanum verða haldin sem hér segir ef næg þátttaka næst:

  • Í byggingagreinum í maí til september. Umsóknarfrestur er til 15. apríl.
  • Í prentgreinum í sept./okt. Umsóknarfrestur auglýstur síðar.
  • Í hönnunar- og handverksgreinum í maí/júní. Umsóknarfrestur er til 15. apríl.
  • Í vélvirkjun í september. Umsóknarfrestur er til 15. júní.
  • Í hársnyrtiiðn í sept./okt. Umsóknarfrestur auglýstur síðar.
  • Í ljósmyndun í sept./okt. Umsóknarfrestur auglýstur síðar.
  • Í málmiðngreinum í maí/júní. Umsóknarfrestur er til 15. apríl.

Dagsetningar prófa verða birtar á vefsíðu IÐUNNAR um leið og þær liggja fyrir.

Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í maí 2021.

Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum.

Umsóknareyðublöð má nálgast á vefsíðu IÐUNNAR.