fbpx
Menu

Fréttir

16. febrúar 2018

8-liða úrslit Morfís

8-liða úrslit Morfís

Mánudaginn 19. febrúar kl. 18:30 mætast Tækniskólinn og Flensborgarskólinn í 8-liða úrslitum Morfís. Umræðuefni kvöldsins  er íslenskt samfélag og er Tækniskólinn á móti.

Keppnin fer fram í Vörðuskóla. Húsið opnar kl. 18:00 og er von á húsfylli. Við hvetjum því alla til að mæta á svæðið og hvetja okkar lið til sigurs.

Tækniskólinn sigraði lið MS í 16-liða úrslitum. Þetta er í fyrsta skiptið sem Tækniskólinn keppir í 8-liða úrslitum Morfís.