Ráðstefna um konur og siglingar

Hvað er svona merkilegt við það?
Fimmtudaginn 26. september er Alþjóðasiglingadagurinn og í ár er hann helgaður konum undir yfirskriftinni „Empowering women in the Maritime community“. Af því tilefni standa samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Siglingaráð fyrir ráðstefnu um konur og siglingar fimmtudaginn 26. september 2019 undir yfirskriftinni Hvað er svona merkilegt við það?
Fulltrúar Tækniskólans munu segja frá námi í Skipstjórnarskólanum og Véltækniskólanum og átakinu #kvennastarf.
Í engri starfsstétt á Íslandi er hlutfall kvenna jafnlágt og á sjó. Markmið ráðstefnunnar er að vekja athygli á fjölbreyttum atvinnumöguleikum í siglingum jafnt fyrir konur og karla. Á ráðstefnunni munu innlendir og erlendir fyrirlesarar fjalla um sögu íslenskra kvenna á sjó, segja frá starfsvali sínu og deila sinni reynslu af samvinnu og sambúð kynjanna í siglingum.
Forseti Íslands opnar ráðstefnuna og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra flytur lokaávarp. Ráðstefnan verður haldin í Kaldalóni í Hörpu og er opin öllum en óskað er eftir því að gestir skrái sig fyrirfram. Dagskrá og skráning eru hér á vefsíðu