Menu

Hjá Tækni­skól­anum eru tvö námskerfi í notkun, Canvas og Inna.

Canvas er kennslukerfi skólans. Í Canvas nálgast nem­endur náms­áætlanir, námsefni, verk­efni, skila­fresti og upp­lýs­ingar frá kenn­urum. Þá skila þau verkefnum í gegnum Canvas nema annað sé tekið fram. Canvas er veigamikill þáttur í dag­legu námi og sam­skiptum í áföngum.

Í Innu er haldið utan um lokaeinkunnir, veikindaskráningar, skráningu sérúrræða, námsferil og mætingu.  Þar má jafnframt finna gildandi stundatöflu. Þá er þar að finna tengiliðaupplýsingar fyrir nemanda og aðstandendur o.fl.

Ef upp koma vandamál við notkun kerf­anna er hægt að fá aðstoð hjá tölvuþjónustu skólans. Einnig má leita upp­lýs­inga og aðstoðar á bóka­safni eða á skrifstofu skólans.

Background text