fbpx
Menu

Fréttir

19. nóvember 2019

Dimmitering útskriftarnema jól 2019

Dimmitering útskriftarnema jól 2019

Dimmitering Tækniskólans haust 2019 fer fram föstudaginn 29. nóvember. Skólinn býður upp á hamborgara, franskar og gos fyrir þá sem taka þátt ásamt því að standa fyrir ratleik um miðbæinn.

Skráning í Dimmiteringuna er hafin og lýkur henni þriðjudaginn 26. nóvember.

Dagskrá
9:30 – Mæting í matsal á Skólavörðuholti
10:00 – Morgunmatur í boði Tækniskólans (Hamborgari, franskar og gos)
10:45 – Ratleikur hefst
12:00 – Ratleik lýkur og verðlaunaafhending

Hefð að myndast

Sterk hefð hefur myndast fyrir útskriftarratleiknum þar sem nemendur (oft klæddir í grímubúninga) flakka um miðbæinn og leysa þrautir og taka myndir af framvindu leiksins. Liðið sem nær að safna flestum stigum vinnur svo til verðlauna.

Undanfarin ár hafa nemendur í hársnyrtiiðn verið sigursælastir þó K2 og nemendur í Raftækniskólanum hafi oft strítt þeim.