Menu

Fréttir

06. febrúar 2026

Fjármálalæsi hluti af skipstjórn og vélstjórn

Björgvin, annar t.h., ásamt nemendum í stjórnunaráfanganum.

Nemendur í skipstjórn og vélstjórn eru nú í seinni stjórnunaráfanga námsins og eru þau flest að útskrifast í vor. Nemendurnir fengu veglega bókagjöf frá Fjármálaviti í byrjun febrúar.

Björgvin Steinsson, kennari áfangans, heyrði af bókinni Snjöll skref í fjármálum eftir Gunnar Baldursson fyrst í útvarpsviðtali á Bylgjunni á leiðinni í vinnuna. Bókin fjallar um grunnatriði í fjármálum einstaklinga og vakti umfjöllunarefnið strax áhuga Björgvins.

Mikilvæg þekking

Í kjölfarið hafði Björgvin samband við útgefendur og úr varð að Fjármálavit gaf nemendum áfangans bókina, sem verður nýtt í kennslu á vorönn. Að sögn Björgvins er fjármálalæsi mikilvægt fag fyrir alla og sérlega góður undirbúningur fyrir skip- og vélstjóra framtíðarinnar.

„Við erum að ljúka gæðastjórnun og mannauðsstjórnun, auk tímastjórnunar og verkefnastjórnunar, og munum í lokin fara yfir fjármálalæsi. Ég hef lengi haft áhuga á að kenna fjármál og fannst mikilvægt að nemendurnir hefðu góða kennslubók í höndunum.“

Hann leggur jafnframt áherslu á umræðu í kennslustunum.

„Þetta er það skemmtilegasta sem ég geri. Ég hef kennt stjórnun síðan 2006 og  vona að mér takist að sá fræjum stjónunarhugsunar hjá nemendum. Við erum vottaður skóli og stjórnunaráfanginn hefur komið vel út. Nemendur sem hafa útskrifast héðan hafa bent á mikilvægi hans,“ segir Björgvin og bætir við að þegar nemendur stígi út á vinnumarkaðinn sé grunnþekking á fjármálum afar mikilvæg.

Björgvin er bjartsýnn á áframhaldandi kennslu í fjármálalæsi og segir góðan ramma fyrir slíkt efni innan áfangans.

„Það er afar mikilvægt að hafa góðar bækur í höndunum þegar við erum að kenna fjármál,“ útskýrir hann að lokum.