Menu

Fréttir

06. maí 2026

Fjölbreyttar vorsýningar Tækniskólans

 

Maímánuður er tími uppskeru í Tækniskólanum þegar nemendur kynna afrakstur verkefna vetrarins. Á næstu vikum verða haldnar fjölmargar sýningar þar sem gestir fá einstakt tækifæri til að skoða fjölbreytt verkefni og kynnast náminu.

Hér fyrir neðan má sjá helstu viðburði sem framundan eru:

 

Útskriftarsýning ljósmyndanema

Útskriftarsýning ljósmyndanema verður haldin þriðjudaginn 12. maí að Vatnsholti 39 frá klukkan 13:00 – 19:00. Léttar veitingar í boði.
Miðvikudaginn 13. maí verður jafnframt opið hús hjá ljósmyndanemum.

 

Útskriftarsýning grafískrar miðlunar

Opið hús og útskriftarsýning nemenda í grafískri miðlun, prentun og bókbandi fer fram þriðjudaginn 12. maí klukkan 14:00 – 19:00 að Vatnsholti 39.

Til sýnis verða loka­verk­efni nem­enda ásamt öðrum verk­efnum sem unnin hafa verið í náminu.

 

Vorsýning Hönnunar – og nýsköpunarbrautar

Vorsýning Hönnunar- og nýsköpunarbrautar verður opnuð miðvikudaginn 13. maí kl. 15:00 – 18:00  á 4. hæð Tækniskólans í Skólavörðuholti. Sýningin er einnig opin föstudaginn 15. maí kl. 12:00 – 18:00 og laugardaginn 16. maí 14:00 – 18:00.

Á sýningunni má sjá fjölbreyttan afrakstur vetrarins úr áföngum á borð við aðferðafræði, teikningu, módelteikningu, líkanagerð, hönnunarsögu, hönnun, verkstæðisvinnu og nýsköpun.

 

útskriftarsýning nema í kjólasaum og klæðskurði 

Útskriftarsýning klæðskera- og kjólasveina úr Tækniskólanum árið 2026 verður haldin í Tækniskólanum Háteigsvegi í hátíðarsal á annarri hæð þann 15. maí. Opið hús á milli 16:00 – 18:00 þar sem hægt verður að skoða afrakstur námsins hjá útskriftarnemendum. Boðið verður upp á létta drykki og veitingar.

 

Kynning á lokaverkefnum vélfræðinga

Kynning á lokaverkefnum vélfræðinga verður haldin laugardaginn 16. maí kl. 13 í Hátíðarsal Tækniskólans við Háteigsveg.

 

Útskriftarsýning húsa-og húsgagnasmíðar

Húsgagna- og húsasmíðasýning útskriftarnema við Tækniskólann verður haldin dagana 19. og 20. maí í trésmíðadeild skólans á Skólavörðuholti.
Á sýningunni gefst gestum kostur á að skoða lokaverkefni útskriftarnema ásamt fjölbreyttum verkefnum.
Sýningin er opin frá kl. 11:00 til 18:00 báða dagana.

 

Uppskeruhátíð/útskrift stafrænnar hönnunar

Uppskeruhátíð/útskrift nemenda í stafrænni hönnun fer fram fimmtudaginn 28. maí klukkan 14:00 í Laugarásbíó þar sem valin verkefni nemenda verða sýnd á bíótjaldinu.

 

Við hvetjum áhugasama til að nýta tækifærið og kynna sér metnaðarfull og skapandi verkefni nemenda skólans.