fbpx
en
Menu
en

Fréttir

20. desember 2020

For­dæma­laus útskrift

Útskrift Tækni­skólans var með heldur óhefðbundnu sniði þessi jólin en hún var haldin með raf­rænum hætti við hátíðlega athöfn heima í stofu.

Viðburðinum var streymt í gegnum Youtube sunnu­daginn 20. des­ember og hófst athöfnin kl. 14:00.

Að þessu sinni útskrifuðust 270 nem­endur af 26 náms­brautum.

 

Prófskírteini heim að dyrum

Á meðan á athöfn­inni stóð bankaði starfs­fólk Tækni­skólans upp hjá nem­endum á suðvest­ur­horninu og afhenti þeim skír­teinin ásamt tákn­rænni gjöf frá skól­anum.

Þrátt fyrir að nem­endur hafi horft á athöfnina heima voru flestir spari­klæddir og settu upp útskrift­ar­húfu í til­efni dagsins.

Útskrift­ar­nemar voru hvattir til að deila myndum frá deg­inum undir myllu­merkinu #heima­út­skrift.

 

Þrautseigja og útsjónarsemi á tímum faraldurs

Nem­endur skólans í hljóðtækni, sem mynda hljóm­sveitina Mono is King, flutti tón­list­ar­atriði á útskrift­ar­at­höfn­inni og sáu nem­endur í hljóðtækni um alla hljóðvinnslu en nem­endur í kvik­mynda­tækni tóku upp. Þá sendu kenn­arar nem­endum sínum raf­rænar kveðjur og Hildur Ingvars­dóttir skóla­meistari flutti ávarp. Þar fjallaði hún meðal annars um þær skrítnu aðstæður sem við höfum búið við und­an­farið og sagði að árið hefði verið erfitt en þó lær­dóms­ríkt. Þá þakkaði hún nem­endum og starfs­fólki skólans fyrir útsjón­ar­semi, þraut­seigju, jákvæðni og umhyggju á þessum óhefðbundu tímum. Þessir eig­in­leikar munu án efa nýtast útskrift­ar­nem­endum vel í framtíðinni.

 

Áhugi á íslenskri byggingarlist kveikjan að náminu

Pétur Lúðvík Marteinsson sem útskrifaðist úr húsasmíði hlaut verðlaun fyri bestan heild­ar­náms­ár­angur í skól­anum. Pétur hefur alltaf haft gaman af nýsmíði, viðhaldi og að gera upp hluti enda kominn af hand­lögnu fólki í báðar ættir. Þá hefur hann mikinn áhuga á íslenskri bygg­ing­ar­list og er það ein af ástæðum þess að hann valdi námið. Fyrst og fremst valdi hann þó húsasmíði þar sem hann taldi námið hag­nýtt. Það sem stóð upp úr í náminu var meðal annars að fá að taka þátt í end­ursmíði á Krýsu­vík­ur­kirkju en að hans mati var mikill fróðleikur fólginn í verk­efninu.

 

Vill skapa eitthvað nýtt á hverjum degi

Alex­andra Líf Bene­dikts­dóttir sem nam hársnyrtiiðn hlaut verðlaun fyrir næst­bestan heild­arár­angur í skól­anum. ,,Ég hef alltaf verið listræn mann­eskja og haft mikinn áhuga á leik­list­ar­menn­ingu ásamt und­ir­bún­ingi baksviðs. Það rann því snemma upp fyrir mér að ég vildi vinna við að skapa eitthvað nýtt á hverjum degi og láta öðrum líða vel í leiðinni, þannig endaði ég í hársnyrti­námi. Næst á dag­skrá er að klára sveins­prófið og ég er spennt að sjá hvert lífið leiðir mig. Von­andi í sjón­varpið, leik­húsið eða kvik­myndir samhliða því að vinna á hársnyrti­stof­unni Prima­donnu“.

 

Tölvur og tæki í miklu uppáhaldi

Egill Pétur Ómarsson sem útskrifaðist með burt­farar­próf í raf­einda­virkjun og stúd­ents­próf hlaut verðlaun fyrir bestan heild­arár­angur í Raf­tækni­skól­anum. Einnig hlaut hann íslenskuverðlaun og verðlaun frá Háskól­anum í Reykjavík fyrir framúrsk­ar­andi árangur í raun­greinum á stúd­ents­prófi. ,,Ég myndi segja að ég hafi valið raf­einda­virkjann þar sem ég hef alltaf haft gaman af tækni ásamt því að smíða og hanna raf­magns­tæki. Tölvur og tæki hafa alltaf verið í upp­á­haldi og þegar ég fann námið vissi ég strax að það væri fyrir mig. Eftir útskrift ætla ég að vinna hjá Sensa til að upp­fylla starfs­hluta námsins og að því búnu stefni ég á háskólanám“.

 

Endurnýtir gamla hluti

Heba Lind Hall­dórs­dóttir hlaut verðlaun fyri góðan árangur í hús­gagnasmíði. ,,Ég hef mikinn áhuga á hús­gagna- og inn­an­húss­hönnun auk þess sem ég hef alltaf haft gaman af því að gramsa á nytja­mörkuðum og end­ur­nýta gamla hluti. Ég ákvað að fara í hús­gagnasmíði því mig langaði að læra hand­tökin en hafði ekki endi­lega mótaða sýn á því hvað ég vildi gera að námi loknu. Nú hef ég hins vegar ákveðið að sér­hæfa mig í hús­gagnaviðgerðum og bólstrun en eftir áramót mun ég hefja nám í Dan­mörku“.

 

Draumastarfið að forrita tölvuleiki

Mikael Andri Ingason sem útskrifaðist af tölvu­braut hlaut viðurkenn­ingu fyrir bestan heild­arár­angur í Upp­lýs­inga­tækni­skól­anum ásamt því að fá verðlaun fyrir góðan árangur í for­ritun. Mikael valdi tölvu­brautina vegna áhuga á for­ritun og tölvu­leikjagerð. ,,Námið var áhuga­vert, skemmti­legt og stuðningur kenn­ar­anna ómet­an­legur. Framtíðarplön mín eru óskýr en ég veit þó að drauma­starfið er að verða tölvu­leikja­for­ritari og mun námið héðan nýtast mér vel í fram­haldinu“.

 

Af íslenskubraut í pípulagnir

Hussain Merzaye sem útskrifaðist af íslensku­braut hlaut verðlaun fyrir jákvæðni og þraut­seigju í námi. Hussain flúði undan ógn Talibana í Afgan­istan og eftir mikla þrauta­göngu fékk hann alþjóðlega vernd á Íslandi og horfir nú til bjartari tíma. Hussain hefur sýnt ótrú­legan dugnað, jákvæðni og áræðni við að læra íslensku ásamt fleiri náms­greinum og hefur hann nám á pípu­lagna­braut í janúar.

 

Nákvæm vinnubrögð lykilatriði í kvikmyndagerð

Svava Lovísa Aðalsteins­dóttir fékk viðurkenn­ingu fyrir frá­bæran árangur í kvik­mynda­tækni, en í Tækni­skól­anum er kennd kvik­mynda- og hljóðtækni í sam­vinnu við Stúdíó Sýr­land.

Jon­athan Devaney, kennari í kvik­mynda­tækni, segir að styrk­leikar Svövu felist í nákvæmum vinnu­brögðum og góðum und­ir­bún­ingi. ,,Hún hefur sýnt framúrsk­ar­andi þekk­ingu á tækni­legum og list­rænum atriðum og verk hennar sýna góða sköp­un­ar­gáfu og skop­skyn“.

 

Eineggja tvíburar fengu viðurkenningu fyrir góða ástundun

Tví­bur­arnir Anton Proppé Hjaltason og Brynjar Proppé Hjaltason hlutu viðurkenn­ingu fyrir góða ástundun í Vél­tækni­skól­anum. Þeir útskrifuðust báðir af vél­stjórn­ar­braut og munaði aðeins 0,05 á loka­ein­kunn þeirra. ,,Það var krefj­andi að takast á við námið í Covid þá aðallega vegna verk­legu kennsl­unnar en við þurftum til dæmis að setja upp verkstæði til að klára loka­verk­efnið. Þá átti hug­takið um að það taki heilt þorp að ala upp barn vel við því gott fólk var boðið og búið til að lána tæki og tól svo þetta gengi upp“. Anton og Brynjar sem héldu upp á daginn heima á Þing­eyri segja námið fjöl­breytt og gott og telja það mjög góðan und­ir­búning fyrir lífið.

 

Gefandi og skemmtilegt að heimsækja nemendur

Har­aldur Guðjónsson Thors fylgdi skóla­meistara og aðstoðarskóla­meistara í nokkrar heim­sóknir og smellti af myndum. Þá tóku fjöl­margir starfs­menn skólans myndir úr sínum heim­sóknum og fylgja nokkrar þeirra með frétt­inni.

Að sögn Hildar skóla­meistara og Guðrúnar Randalín aðstoðarskóla­meistara var virki­lega skemmti­legt og gef­andi að afhenda glaðbeittum og upp­á­búnum nem­endum skír­teini og gjöf frá skól­anum og hitta í leiðinni aðstand­endur. Þær vonast þó til þess að geta í tekið í höndina á nem­endum á næsta ári grímu­lausar og gert þetta allt með hefðbundnari hætti.

 

Við óskum nemendum öllum hjartanlega til hamingju með útskriftina!