fbpx
Menu

Fréttir

03. febrúar 2024

Ókeypis forritunarnámskeið

Forritunarkeppni grunnskólanna

Tækniskólinn býður nemendum í 9. og 10. bekk á forritunarnámskeið fyrir byrjendur og að taka þátt í Forritunarkeppni grunnskólanna.

Forritunarnámskeið
Laugardaginn 17. febrúar kl. 10:00–16:00

Forritunarkeppni
Laugardaginn 24. febrúar kl. 12:30–17:00

Bæði námskeiðið og keppnin fara fram í húsnæði Tækniskólans á Háteigsvegi.

Tölvubraut Tækniskólans stendur fyrir keppninni og er markmið hennar að kynna forritun fyrir grunnskólanemendum og skapa vettvang þar sem þeir geta komið saman og leyst skemmtileg verkefni.

Skráning hefst 24. janúar inn á kodun.is en þar má einnig sjá nánari upplýsingar um viðburðinn.