Menu

Fréttir

19. janúar 2026

Forritunarkeppni grunnskólanna

Nemendum í 9. og 10. bekk í grunnskóla er boðið á frítt byrjendanámskeið í forritun og að taka þátt í Forritunarkeppni grunnskólanna.

Námskeið og keppni fara fram laugardaginn 14. febrúar kl. 09:30 –16:15 í húsnæði Tækniskólans á Háteigsvegi.

Tölvubraut Tækniskólans stendur fyrir keppninni og er markmið hennar að kynna forritun fyrir grunnskólanemendum og skapa vettvang þar sem þeir geta komið saman og leyst skemmtileg verkefni.

Nánari upplýsingar, dagskrá og skráningarskjal má finna á kodun.is

Skráningu lýkur 11. febrúar.