Fullveldiskaffi í Tækniskólanum
Hátíðarkaffihlaðborð
Fullveldisdagurinn 1. desember 1918 markaði tímamót í sögu Íslands þegar sambandslögin við Danmörku gengu í gildi og landið öðlaðist fullveldi. Þar með varð Ísland frjálst ríki með eigin stjórn og þjóðfána, sem var í fyrsta sinn dreginn að húni þennan dag.
Í tilefni fullveldisdagsins býður Tækniskólinn nemendum og starfsfólki til hátíðarkaffihlaðborðs.
Kaffið verður haldið mánudaginn 1. desember og hefst kl. 14:25 í matsal nemenda á Háteigsvegi, í Hafnarfirði og á Skólavörðuholti. Einnig verða boðnar fram veitingar á verkstöð flugvirkjanema í Árleyni og í verklegum kennslustofum Byggingatækniskólans í Skeljanesi.
Hefð hefur skapast fyrir því að nemendur og starfsfólk mæti spariklædd í tilefni dagsins. Við hvetjum öll til að halda í þá hefð og fagna deginum í sparifötunum.