Menu

Fréttir

27. nóvember 2024

Fullveldiskaffi í Tækniskólanum

Í til­efni fullveldisdagsins býður Tækni­skólinn nem­endum og starfs­fólki til hátíðarkaffihlaðborðs.

Kaffið verður haldið föstudaginn 29. nóvember og hefst kl. 10:10 í matsal nem­enda á Háteigs­vegi, í Hafnarfirði og á Skólavörðuholti.

Full­veld­is­dag­urinn er svo nefndur til minn­ingar um að þann 1. des­ember 1918 tóku gildi milli Íslands og Dan­merkur Sam­bands­lögin sem voru lög um það hvernig Ísland stóð í sam­bandi sínu við Dan­mörku. Í þeim kom meðal annars fram viðurkenning Dan­merkur á því að Ísland væri full­valda og frjálst ríki.

Við hvetjum nemendur og starfsfólk til þessa kíkja í kaffið og að mæta spari­klædd þennan dag.