Fyrsta umferð Gettu betur 2026

Fyrsta umferð Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna, fer fram dagana 5., 6. og 7. janúar.
Lið Tækniskólans skipa Einar Helgi Dóruson og Benedikt Dagur Benediktsson, nemendur á tölvubraut, og Lára Ósk Óttarsdóttir, nemandi á K2. Þjálfari liðsins er Auður Aþena Einarsdóttir, fyrrum nemandi Tækniskólans af námsbrautinni K2 og keppandi Gettu betur árið 2018. Aðstoðarþjálfari er Íris Erna Eysteinsdóttir.
Fyrstu keppinautar Tækniskólans er lið Borgarholtsskóla og fer viðureignin fram þriðjudaginn 6. janúar kl. 19.30.
Hægt er að fylgjast með keppninni í beinni útsendingu á vefsíðu RÚV.
Spurningahöfundar í ár eru Sigurlaugur Ingólfsson, Vilhjálmur B. Bragason og Arnar Gunnarsson.
Helga Margrét Höskuldsdóttir er nýr spyrill Gettu betur og tekur hún við keflinu af Kristni Óla Haraldssyni, Króla.
Áfram Tækniskólinn!