10. apríl 2025
Góð aðsókn á opið hús
Þann 26. mars síðastliðinn var Tækniskólinn með opið hús fyrir gesti og gangandi frá kl. 15:30 til 17:30. Mjög góð aðsókn var á viðburðinn en hægt að var að heimsækja húsnæði skólans á Skólavörðuholti, í Hafnarfirði og á Háteigsvegi.
Á opnu húsi gátu gestir meðal annars kynnt sér fjölbreytt námsframboð, félagslíf og aðstöðu í Tækniskólanum. Eining var boðið upp á skoðunarferðir um skólann, reglulegar kynningar voru á sal, myndasýningar á skjáum og víða mátti sjá nemendur að störfum.
Starfsfólk var virkilega ánægt með aðsóknina og áhugavert spjall við nemendur og foreldra sem lögðu leið sína til okkar.
Takk fyrir að gefa ykkur tíma til að kíkja til okkar í Tækniskólann og vonandi sjáum við sem flest ykkar næsta haust!