Menu

Fréttir

10. september 2025

Gulur september

Gulur september – hugsum vel um okkur og þá sem eru í kringum okkur

Gulur september snýst um að huga sérstaklega að geðheilsu og forvörnum gegn sjálfsvígum. Það getur reynst erfitt fyrir marga, jafnvel óþægilegt, að tala um þessi mál, en þau snerta okkur öll og eru mikilvæg. Lífið er ekki alltaf auðvelt, að bæta geðheilsu sína er áskorun fyrir okkur öll, en það má alltaf finna leiðir og hjálp er að finna víða.

Stundum líður okkur illa – það er mannlegt og eðlilegt. Það að upplifa kvíða, sorg eða depurð er stundum hluti af því að lifa lífinu. En ef vanlíðan verður mikil, þrálát eða byrjar að trufla daglegt líf, þá er mikilvægt að stíga næsta skref og leita hjálpar. Það er ekki merki um veikleika, heldur styrkleika. Þú ert ekki ein(n) í þessu, þó það geti stundum virst vera þannig, það eru til lausnir og fólk sem vill hlusta.

Ef þú ert að glíma við vanlíðan, erfiðar og neikvæðar hugsanir, eða þú upplifir að það gangi ekki nógu vel með lífið, þá skiptir máli að opna á samtal um það. Það getur verið við vin, foreldri, systkini, kennara eða annan aðila í þínu lífi, einhvern sem þú treystir. Það þarf ekki að vera flókið eða djúpt, gæti t.d. verið “mér gengur ekki nógu vel” eða “mér líður ekki nógu vel”. Þá er rétt að minna á að við Tækniskólann starfar öflugur hópur sem myndar stoðteymi, svo sem hjúkrunarfræðingur, náms- og starfsráðgjafar og sálfræðingur, sem vilja umfram allt eiga samtal við nemendur og styðja við þá.

Þá á þetta einnig við ef þú hefur áhyggjur af einhverjum öðrum. Áhyggjur kunna að kvikna ef þú tekur eftir því að viðkomandi hefur breytt hegðun sinni, er farinn að vera meira út af fyrir sig, kannski meira fjarverandi úr tímum, eða sýnir einhver merki um vanlíðan. Í þess háttar tilvikum þarft þú ekki að hafa áhyggjur af því að kunna ekki að laga vandann, eða vita ekki nákvæmlega hvað þú átt að segja. Mestu máli skiptir er að sýna að þér sé ekki sama, sýna samkennd og nærveru. Að segja eitthvað stutt og einfalt eins og “viltu ræða málin” eða “hvernig hefur þú það” getur opnað á samtal sem getur breytt öllu.

Við getum öll tekið þátt í því að búa til samfélag í skólanum þar sem auðveldara er að tala um líðan, þar sem við aukum samkennd og samveru, og minnkum fordóma. Við þurfum ekki að kunna neitt sérstakt eða vera einhverjir sérfræðingar, bara vera til staðar, hefja samtöl og hlusta. Einföld athöfn eins og að setjast hjá einhverjum í matsalnum, sem venjulega situr einn, getur bjargað lífi!

Gulur september minnir okkur á þetta, að þrátt fyrir það að lífið geti verið alls konar, og oft erfitt, þá er lífið dýrmætt og við getum fundið leiðir til þess að vinna með vandann, finna lausnir og láta okkur líða betur. Við getum veitt öðrum styrk, fundið styrk fyrir okkur hjá öðrum, og hafið vegferð sem leiðir okkur til betri tíma.

Nokkrir punktar sem eru til þess fallnir að bæta geðheilsu:

  • Passa uppá að sofa mátulega mikið og reglulega
  • Hreyfa sig á hverjum degi
  • Borða fjölbreytt og mátulega mikið
  • Skipuleggja skólann, áhugamál og hafa snyrtilegt í umhverfi sínu
  • Vera með öðru fólki, og vera minna ein(n) inni í herbergi
  • Setja sér markmið til framtíðar
  • Brjóta markmiðin niður í litlar einingar svo hægt sé að gera eitthvað smávegis á hverjum degi – þannig upplifir þú að þú getir náð smá árangri á hverjum degi

 

Benedikt Bragi Sigurðsson, sálfræðingur Tækniskólans.