Menu

Fréttir

17. nóvember 2025

Heimsókn í Hellisheiðarvirkjun

Jarðhiti og háspenna

Nemendur Raftækniskóla Tækniskólans lögðu nýverið leið sína í Hellisheiðarvirkjun á sunnanverðu Hengilssvæðinu. Heimsóknin var hluti af lokaáfanga í rafvirkjun, þar sem fjallað er um virkjanir, háspennukerfi og dreifingu raforku til notenda.

Hellisheiðarvirkjun er rekin af Orkuveitu Reykjavíkur í gegnum ON, Orku náttúrunnar. Virkjunin er ein stærsta jarðvarmavirkjun í heiminum og nýtir hún jarðhita úr jarðskorpunni til framleiðslu rafmagns og heits vatns fyrir stóran hluta höfuðborgarsvæðisins.

Virkjunin er lykilþáttur í orkuöflun Íslands og byggir á sjálfbærri nýtingu jarðhita. Á svæðinu er Carbfix-verkefnið einnig starfrækt, sem hefur vakið heimsathygli fyrir að fanga og binda kolefni í jarðlögum með náttúrulegum ferlum. Hellisheiðarvirkjun er því mikilvægt dæmi um umhverfisvæna orkulind sem stuðlar að lágkolefnisframtíð.

Að sögn Trausta Gylfasonar, kennara við Raftækniskólann, var heimsóknin bæði fræðandi og hvetjandi fyrir nemendur og góð samantekt á þeim námsefnisþáttum sem nemendur hafa unnið með á önninni.

Tækniskólinn þakkar Orku náttúrunnar kærlega fyrir hlýjar móttökur og frábæra leiðsögn.