29. júní 2017
Skólasetning í þremur húsum

Skólasetning á þremur stöðum
Gert er ráð fyrir skólasetningu í þremur aðalbyggingum Tækniskólans, sem hér segir:
Skólavörðuholt 15. ágúst kl. 11:00 – Matsalur nemenda á þriðju hæð.
Fyrir nemendur sem stunda nám á Skólavörðuholti.
Hafnarfjörður 16. ágúst kl. 11:00 Matsalur nemenda á annarri hæð
Mæting nemenda sem stunda nám í Flatahrauni í Hafnarfirði.
Háteigsvegur 17. ágúst kl. 11:00 – Hátíðarsalur á annarri hæð
Fyrir nemendur sem stunda nám á Háteigsvegi.
(Margmiðlunarskólinn, Skipstjórnarskólinn og Véltækniskólinn að frátöldum þeim sem stunda nám í Hafnarfirði)
Dagskrá skólasetningar er sú sama á öllum stöðum og tekur um klukkustund og verður nemendum boðið uppá grillaðar pylsur og drykki.
Dagskrá:
11:00 – Setning – Jón B. Stefánsson, skólameistari.
11:07 – Kynning – Ólafur Sveinn Jóhannesson, deildarstjóri og Þorvaldur Guðjónsson félagsmálafulltrúi.
11:15 – Grill
11:55 – Skólar – hver skólastjóri kynnir sinn skóla.