20. apríl 2026
Ísdagur Tækniskólans haldinn hátíðlegur

Miðvikudaginn 22. apríl verður Ísdagur Tækniskólans haldinn hátíðlegur þegar veturinn verður kvaddur með ljúffengum ís í byggingum skólans.
Af því tilefni verður boðið upp á þrenns konar ís klukkan 10.00 í mötuneytum skólans í Hafnarfirði, á Skólavörðuholti og á Háteigsvegi.
Ísdagurinn er skemmtileg hefð þar sem nemendur og starfsfólk koma saman, njóta góðra ísa og fagna komu bjartari daga.