fbpx
Menu

Fréttir

01. júní 2018

Kvika veitir styrki til iðnnáms

Kvika veitir styrki til iðnnáms

Kvika auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Hvatningarsjóði Kviku vegna skólaársins 2018-2019.

Umsóknarfrestur er til 15. júní 2018.

Umsóknir skulu sendar á netfangið [email protected].

Sérstök úthlutunarnefnd fer yfir umsóknir og tekur ákvörðun um styrkveitingar. Úthlutunarnefndina skipa Íris Arna Jóhannsdóttir frá Kviku, Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir frá Samtökum iðnaðarins og Jón Pétur Zimsen skólastjóri Réttarholtsskóla.

Um úthlutunarreglur sjóðsins er vísað á vefsíðuna kvika.is

Nánari upplýsingar veitir Íris Arna Jóhannsdóttir, forstöðumaður skipulagsþróunar samstæðu, í síma 540 3200.

Um Hvatningarsjóðinn

Hvatningarsjóðurinn er samstarfsverkefni Kviku og Samtaka iðnaðarins sem hefur það að markmiði að efla umræðu og vitund um mikilvægi iðn- og starfsnáms og þýðingu starfa sem því tengjast fyrir íslenskt atvinnulíf.

Styrkja þarf ímynd iðnnáms og starfa sem því tengjast og efla áhuga og vitund grunnskólanema, foreldra, atvinnurekenda og almennings á mikilvægi iðnnáms. Skortur er á iðnmenntuðu fólki og er sá skortur víða orðinn hamlandi fyrir starfsemi fyrirtækja. Með Hvatningarsjóði Kviku viljum við bregðast við þessu með styrkjum til nema í iðnnámi. Sérstök áhersla er lögð á að auka hlutfall kvenna og eru konur því sérstaklega hvattar til að skoða þau tækifæri sem bjóðast.

Styrktarfjárhæð sjóðsins er 5 milljónir króna árlega í þrjú ár. Heildarstyrkir munu því nema 15 milljónum króna á tímabilinu 2018-2021. Ávallt verður litið til kynjahlutfalla við mat á umsóknum og úthlutun styrkja og leitast við að hafa þau jöfn. Við úthlutun styrkja að fjárhæð 500.000 krónum eða meira verður a.m.k. helmingi slíkra styrkja úthlutað til kvenna.

Það er engin rétt leið – bara þín leið

Vissir þú af þeim fjölmörgu iðngreinum sem eru í boði og að nemendur fá starfsréttindi strax að loknu náminu? Ef þú hefur lokið iðnnámi og náð þér í praktíska reynslu þá hefur þú betri grunn fyrir mörg störf sem bjóðast í framhaldinu. Það er síðan auðvelt að bæta við sig bóknámi ef það vantar eitthvað uppá til að fá inngöngu í það háskólanám sem þig langar í. Þú getur farið þína eigin leið.

Hvatningarsjóður Kviku stendur með þér

Kvika auglýsir eftir umsóknum um styrki í sjóðinn á tímabilinu mars – maí ár hvert vegna komandi skólaárs. Auglýsingar verða birtar í dagblöðum eða með öðrum sannanlegum hætti. Þá verða auglýsingar birtar á heimasíðum Kviku og Samtaka iðnaðarins.

Eingöngu nemar sem hafa, að lágmarki, lokið fyrsta ári í námi í löggiltum iðngreinum sem heyra undir Samtök iðnaðarins geta sótt um styrk. Styrkir geta numið á bilinu 200.000 – 1.000.000 króna.