fbpx
Menu

Fréttir

05. janúar 2020

Landskeppni í líffræði

Landskeppni í líffræði

Landskeppni framhaldsskólanna í líffræði verður haldin miðvikudaginn 15. janúar 2020 klukkan 9:00-10:00.

Þátttaka er opin öllum framhaldsskólanemum landsins. Þeim keppendum sem standa sig best í landskeppninni verður boðið að taka þátt í verklegum æfingum í Háskóla Íslands á vorönn. Úr þeim hópi verður síðan valinn 4 manna hópur sem keppir fyrir Íslands hönd á ólympíuleikunum í líffræði í Japan næsta sumar. (https://ibo2020.org/en/home/)

Keppnin er á formi krossaprófs með 50 spurningum á ensku. Keppendur fá úthlutaðan ensk-íslenskan orðalista með prófinu.

Skráning er hafin og stendur til 10. janúar 2020. Nemendur skrá sig til leiks hér: https://forms.gle/wwJiSVhtXSbzBDn96