Margmiðlunarskólinn breytir um nafn

Það var mat kennara við [gamla] Margmiðlunarskólann að orðið margmiðlun væri barn síns tíma og ekki nægilega lýsandi fyrir námið. Þannig má færa rök fyrir því að hugtakið „stafræn hönnun“ eigi betur við í tilfelli verkefna og námsskipulags.
Þetta er heimur þar sem þróun er afskaplega hröð og krefst stöðugrar símenntunar og nemendur fá þjálfun í því að temja sér þann hugsunarhátt að halda sífellt áfram að læra. Rauði þráðurinn í flestum okkar verkefnum er vinna með stafrænt efni og hönnun eða hverskonar sköpun og hugmyndavinnu.
Nám í STAFRÆNNI HÖNNUN hentar þeim sem hafa áhuga á þrívíddarvinnslu, eftirvinnslu kvikmynda, tölvuleikjagerð og teiknimyndagerð. Í náminu er lögð mikil áhersla á hugmyndavinnu, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð. Markmiðið er að útskrifa nemendur með frjóa hugsun og vilja til að fara nýjar leiðir í stafrænni hönnun.
Dæmi um starfssvið nemenda sem útskrifast úr Margmiðlunarskólanum eru tæknibrellur í kvikmyndum eins og Star Wars, Infinity Wars og Guardians of the Galaxy Vol I og II. Flest leikjafyrirtæki á landinu hafa á sínum snærum útskrifaða nemendur úr Margmiðlunarskólanum, fyrirtæki eins og CCP og Sólfar.