Mín framtíð 2025
Íslandsmót iðn- og verkgreina í Laugardalshöll
Dagana 13.–15. mars 2025 er framhaldsskólakynningin Mín framtíð í Laugardalshöllinni. Á sama tíma heldur Verkiðn, Íslandsmót iðn- og verkgreina, þar sem um 60 nemendur frá Tækniskólanum keppa í fjölbreyttum greinum. Keppendur glíma við krefjandi verkefni sem reyna á hæfni þeirra, skipulagshæfileika og fagmennsku. Sigur í keppninni veitir keppendum tækifæri til að taka þátt í Euroskills, sem fer næst fram í Herning í Danmörku í september 2025.
Kynntu þér námsframboð Tækniskólans!
Á viðburðinum kynna 25 skólar námsframboð sitt, og von er á yfir 9.000 nemendum úr 9. og 10. bekk til að fræðast um nám og framtíðarmöguleika. Fulltrúar Tækniskólans verða á fjölmörgum keppnisbásum, auk þess sem skólinn mun kynna námsframboð sitt á kynningarbás í Laugardalshöllinni. Gestir fá einstakt tækifæri til að prófa gröfu- og suðuhermi, stýra vélmenni, spreyta sig í hárgreiðslu, kynna sér 3D prentun og töfrandi hluti af hönnunar og nýsköpunarbraut.
Fjölskyldudagur – spennandi dagskrá fyrir öll
Á lokadegi mótsins verður haldinn fjölskyldudagur með skemmtilegri dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Viðburðurinn leggur áherslu á að veita innsýn í ólíkar námsleiðir og styðja einstaklinga í að finna það nám sem fellur að þeirra styrkleikum.
Vertu með og upplifðu framtíðina í iðn- og verkgreinum!