Skólahald fellur niður

Vegna slæmrar veðurspár hefur verið ákveðið að fella niður skólahald í dagskóla í Tækniskólanum á morgun fimmtudaginn 26. mars. Við hvetjum nemendur til að nýta tímann vel til heimanáms og fylgjast jafnframt með skilaboðum sem kunna að koma frá kennurum í innu/tölvupósti. Ekki er gert ráð fyrir röskun á dreifnámi um kvöldið.
Gul viðvörun er á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan 5:00 til 7:00 í fyrramálið og eftir það tekur við appelsínugul viðvörun sem er í gildi til klukkan 13:00. Varað hefur verið við blindhríð og miklum vindi og í tilkynningu frá Almannavörnum í dag kom fram að best sé að vera sem minnst á ferðinni ef möguleiki er á því.
Nánar hér: https://vedur.is/vidvaranir
–
Due to the bad weather forecast school during the day will be canceled tomorrow Thursday March 26nd. We encourage students to make good use of the time at home for homework and also monitor messages that may come from teachers through inna/email. We expect no changes for evening school (dreifnám).
A yellow warning is in effect in the capital area from 5:00 to 7:00 tomorrow morning and after that an orange warning will take effect, which lasts until 13:00. A warning has been issued for a blizzard and high winds and authorities have asked everyone who can to stay at home during the warning.
More information about the weather warning can be found here: https://vedur.is/