11. mars 2026
Nemendum boðið í vöfflukaffi
Vöfflukaffi Tækniskólans

Fimmtudaginn 12. mars fögnum við nýrri spönn með vöfflukaffi. Þá mæta stjórnendur skólans með vöfflujárn í vinnuna og baka ofan í öll sem kunna að meta góðar vöfflur.
Vöfflurnar verða í boði í matsalnum á Skólavörðuholti, á Háteigsvegi og í Hafnarfirði og á kaffistofum í Árleyni og á Skeljanesi í frímínútunum kl. 14:25
Öll velkomin í rjúkandi vöfflukaffi.