Ró-Box fyrirtæki ársins í samkeppni Ungra frumkvöðla

Ró-Box fyrirtæki nemanda á K2 valið fyrirtæki ársins 2019
Fyrirtækið Ró-Box, sem er í eigu nemenda við Tækniskólann, var valið fyrirtæki ársins 2019 í samkeppni Ungra frumkvöðla, Junior Achievement á Íslandi. Mun Ró-Box keppa fyrir hönd Ísland, í Evrópukeppni Ungra frumkvöðla, sem fram fer í Lille, Frakklandi dagana 3. – 5. júlí 2019, á 100 ára afmæli JA á heimsvísu. https://www.coyc2019.org/


Tvö lið af tuttugu sem komust í úrslit voru frá Tækniskólanum
„Ró-Box er einkahlutafélag sem selur róbota-kit fyrir krakka. Róbota-kittin eru einföld, með íslenskum leiðbeiningum og hjálpa krökkum að læra á tækni og forritun.“ – segir í lýsingu á hugmyndinni. Tuttugu fyrirtæki frá 13 framhaldsskólum, voru valin úr hópi 120 fyrirtækja, til að taka þátt í úrslitum Ungra frumkvöðla 2019. Gaman er að geta þess að Tækniskólinn átti tvö lið sem komust í 20 liða úrslit, þ.e. liðið Ró- box sem sigraði er frá K2: Tækni- og vísindaleið og liðið Yl af Hönnunar- og nýsköpunarbraut.
Eftirfarandi hlutu verðlaun:
- Fyrirtæki ársins 2019: Ró-Box (Tækniskólinn)
- Fyrirtæki ársins – 2. Sæti: Blakkur (Borgarholtsskóli)
- Fyrirtæki ársins – 3. Sæti: Karma (Menntaskólinn í Kópavogi)
- Áhugaverðasta nýsköpunin: Fruss (Menntaskólinn við Hamrahlíð)
- Besti Sjó-Bisnessinn: Haf hársprey (Verslunarskóli Íslands)
- Fallegasti sölubásinn: Sylque (Verslunarskóli Íslands)
- Besta matvælafyrirtækið: Gen-Yo (Kvennaskólinn í Reykjavík)
- Bestu markaðsmálin: Hafmey (Menntaskólinn við Sund)
- Umhverfisvænasta lausnin: Vei!(Fjölbrautaskólinn í Garðabæ)
- Besta tæknilausnin: iRadar (Verslunarskóli Íslands)
- Samfélagsleg nýsköpun: Tilfinningamolar (Borgarholtsskóli)
- Besta fjármálalausnin: Ungdómur (Fjölbrautaskólinn við Ármúla)
- Besta hönnunin: A Bag Project (Fjölbrautaskólinn í Garðabæ)
Með fyrirtækjasmiðjunni er frumkvöðlastarf kynnt fyrir framhaldsskólanemum með það að markmiði að efla frumkvöðlaanda meðal ungmenna og þjálfa frumkvöðla framtíðarinnar. Árið 2019 tóku 560 nemendur í 13 framhaldsskólum þátt og er útlit fyrir að fjöldinn verði enn meiri á næstu árum. Markmiðið er að gefa meirihluta íslenskra nemenda færi á að kynnast frumkvöðlastarfi af eigin raun í námi sínu.
Ungir frumkvöðlar efla íslenska nýsköpunarmenningu með átaki sínu í framhaldsskólum og bætast þar með við þau átaksverkefni sem fyrir eru á háskólastigi (Startup Reykjavík, Startup Energy Reykjavík) og á grunnskólastigi (Nýsköpunarkeppni grunnskólanna). Öllu þessu starfi er ætlað að hvetja unga fólkið til þess að tileinka sér nýsköpun í starfi sínu og námi.
Við erum stolt af þessum fyrirmyndarnemendum og góðu kennurunum þeirra og óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn.