Menu

Fréttir

05. september 2024

Nýnemaballi frestað

Kæru nemendur og aðstandendur (English below)

Á fundi skólameistara BHS, FÁ, FB, FMos og TS í gær var tekin ákvörðun um að fresta sameiginlegu nýnemaballi skólanna sem halda átti fimmtudaginn 12. september. Nemendur sem þegar hafa keypt miða fá þá endurgreidda en ný dagsetning fyrir ball verður ákveðin á næstunni.

Ástæða frestunarinnar er sá hörmulegi atburður sem átti sér stað á Menningarnótt. Mikil sorg og vanlíðan ríkir í samfélaginu og eiga mörg um sárt að binda. Ekki er vilji fyrir því að halda viðburð sem þennan á vegum skólanna á þessum tímapunkti. Mikilvægt er að við sýnum samkennd og vottum við aðstandendum, vinum og skólafélögum Bryndísar Klöru Birgisdóttur okkar dýpstu samúð. 

 

Blessuð sé minning Bryndísar Klöru

Ársæll Guðmundsson,
skólameistari Borgarholtsskóla

Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir,
skólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti

Hildur Ingvarsdóttir,
skólameistari Tækniskólans

Magnús Ingvason,
skólameistari Fjölbrautaskólans við Ármúla

Valgarð Már Jakobsson,
skólameistari Framhaldsskólans í Mosfellsbæ

 


 

Dear students and guardians

Yesterday it was decided by us, the principals of BHS (Borgarholtsskóli), FÁ (Fjölbrautaskólinn við Ármúla), FB (Fjölbrautaskólinn í Breiðholti), FMos (Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ) and TS (Tækniskólinn), to postpone the joint freshman dance (nýnemaball) of the schools, which was to be held on Thursday, September 12th. Students who have already bought tickets to the dance will be refunded and a new date for a dance will be decided in the near future.

The reason for the postponement is the horrible event that took place on Menningarnótt in Reykjavik. There is a lot of sadness and distress in our society and many people are hurting. We have no desire to hold an event like this on behalf of the schools at this point in time.  It is important that we show empathy and we express our deepest condolences to Bryndís Klara Birgisdóttir’s relatives, friends and schoolmates.

 

In memory of Bryndís Klara

Ársæll Guðmundsson,
Principal of Borgarholtsskóli

Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir,
Principal of Fjölbrautaskólinn í Breiðholti

Hildur Ingvarsdóttir,
Principal of Tækniskólinn

Magnús Ingvason,
Principal of Fjölbrautaskólinn við Ármúla

Valgarð Már Jakobsson,
Principal of Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ