Menu

Fréttir

25. ágúst 2025

Nýnemaferðin færist til miðvikudags

Nýnemar í Tækniskólanum í Hafnarfirði og á Háteigsvegi fengu eftirfarandi tölvupóst vegna nýnemaferðar:

 

Kæru nemendur og aðstandendur.

Vegna veðurs höfum við ákveðið að færa nýnemaferð nemenda á Háteigsvegi og í Hafnarfirði, sem átti að fara á morgun þriðjudaginn 26. ágúst, yfir á miðvikudaginn 27. ágúst.

Veðurspáin fyrir morgundaginn gerir ráð fyrir mikilli úrkomu og hvassviðri. Samstarfsaðilar okkar á Stokkseyri mæla eindregið með því að fresta ferðinni um einn dag.

Við biðjumst velvirðingar á stuttum fyrirvara og vonum að sem flest geti mætt á miðvikudaginn. Ferðin verður að öðru leyti með sama sniði: kajak, bubbluboltar, ratleikur og grill í hádeginu. Við lofum góðri stemningu!

Fyrir nánari upplýsingar má senda okkur póst á netfangið [email protected].