17. mars 2026
Skrúfudagurinn 2026
Skrúfudagurinn 2026 verður haldinn laugardaginn 21. mars frá klukkan 13:00 – 16:00 í húsnæði Tækniskólans við Háteigsveg.
Gestum og gangandi gefst meðal annars kostur á að skoða aðstöðuna, kíkja upp í turn, heilsa upp á nemendur og starfsfólk og prófa herma og annað spennandi. Einnig verður glæsilegt veisluhlaðborð á fjórðu hæðinni.
Boðið verður upp á fyrirtækjakynningar þar sem mörg af fremstu fyrirtækjum landsins verða á staðnum.
Verið öll hjartanlega velkomin!
Dagskrá
Setning
- Víglundur Laxdal Skólastjóri býður gesti velkomna
- Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra setur hátíðina
- Tónlistarmaðurinn Herbert Guðmundsson leikur nokkur lög
Útisvæði
- Milwaulkee bíllinn
- Kraftvélar
- Torfærubílar
- Sorpa
- Átthjólatrukkur
Aðalbygging – 1. hæð
- Móttaka gesta
- Vélahermir
- Stafræn hönnun er opin fyrir gesti til þess að skoða töfra stafrænnar hönnunar og tölvuleikjagerðar
Aðalbygging – 2. hæð
- Netagerð
- Hafrannsóknarstofnun
- Kapp
- Ístækni
- Elding
- Iðn-Ung
- Fagkonur
- Styrkár
- Rst Net
Aðalbygging – 3. hæð
- Suðuhermar
- CNC vélar
- Slysavarnarfélagið Landsbjörg
- Landhelgisgæslan
- HD
- Greenfish
Aðalbygging – 4. hæð
- Veitingasala
- Gamlar útskriftarmyndir og lokaverkefni til sýnis á bókasafni
Aðalbygging – Turn
- Siglingatæki verða til sýnis í turninum
- Gestir geta farið út á svalir en þar er frábært útsýni yfir Reykjavík
Rafmagnshús
- Siglingahermir
Vélahús
- Orka náttúrunnar
- Veitur